Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Side 91
91
**p<0,01 *p<0,05
Kyngervi raunvísinda: Námsval og aðstæður kvenna í hefðbundnum karlagreinum við Háskóla Íslands
eins og fram kemur þegar svör við spurn-
ingum um kyngervi námsins eru skoðaðar.
Væntingar að námi loknu
Nemendur voru spurðir með opinni
spurningu hvað þeim fyndist líklegt að
þeir kæmu til með að starfa við. Oftast
voru nefnd störf við rannsóknir og þróun,
kennslu, tölvu- og tækniráðgjöf, forritun
og verkfræðistörf. Þá nefndu bæði karlar
og konur störf tengd hönnun, störf í fjár-
málageiranum og tölfræði- og gagnaúr-
vinnslu. Fjölmargir karlar nefndu ýmiss
konar stjórnunarstörf og störf við hug-
búnaðargerð.
Þegar nemendur voru spurðir um
draumastörf komu í flestum tilvikum upp
störf sem krefjast menntunar í því sem þeir
stunda nám í. Fjölmargir nefndu virt fyrir-
tæki á sínu sviði og nokkrir nefndu að þeir
vildu stofna sín eigin fyrirtæki í sínu fagi.
Nemendur voru spurðir hvaða laun þeir
teldu viðunandi mánaðarlaun að námi
loknu. Nefnd voru laun á bilinu 250.000–
750.000 kr. Meðaltal þeirra mánaðarlauna
sem konur nefndu var 470.000 kr. (sf =
80.434) og meðaltal karla var 454.444 kr. (sf
= 130.207). Ekki var um marktækan mun
að ræða t(85)= 0,67, p>0,01.
Umræður
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda
til þess að konur sem velja háskólanám
á sviði raunvísinda hafi trú á eigin færni
í stærðfræði og séu sterkir námsmenn en
þær virðast hafa þurft sérstaka hvatningu
og stuðning til að velja nám í hefðbundn-
um karlagreinum. Nemendur í þessum
námsgreinum eru almennt ánægðir í nám-
inu og hafa jákvæða upplifun af menningu
námsgreina sinna en þegar spurt er nánar
3. mynd
4. mynd
4,0
3,1
3,3
3,2
3,5
3,7
3,9
3,0
2,9
3,5
3,5
3,7
1 2 3 4 5
Ástundun
Hagnýting og reynsla
Álag í námi*
Trú á eigin færni
Jafningjamenning
Kennslumenning
Karlar
Konur
2,4
1,9
3,5
2,3
2,4
2,4
2,2
3,0
1,8
2,4
1 2 3 4 5
Kyngervi námsins
Konur og tækni
Fyrirmyndir/stuðningur*
Jafnrétti og virðing**
Hlutfall kvenna í náminu
Karlar
Konur
4. mynd: Viðhorf til kynja í náminu: Meðaltal svara eftir kyni.