Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Page 103
103
Það er víðtækt og lífseigt mynstur að strákar sækja í raun- og tæknigreinar, stærðfræði
og náttúrufræði, en stelpur í hug- og félagsvísindi, heilbrigðisvísindi og menntunarfræði.
Ísland er hér engin undantekning. Háskólar víða um heim hafa hrundið af stað átaks-
verkefnum til að leiðrétta þessa kynjaskekkju, þó oftast með litlum árangri. Í flestum til-
vikum er um að ræða átaksverkefni í kynningum og auglýsingum sem beinast að stúlkum
í þeim tilgangi að hvetja þær til að velja raunvísindi. Í auknum mæli er sjónum nú beint að
kerfislægum hindrunum, svo sem orðræðu sem þrífst innan vísindagreinanna og menn-
ingunni sem loðir við greinarnar. Hér verður greint frá niðurstöðum meistararannsóknar
í kynjafræði sem fjallaði um menningu og orðræðu innan raunvísinda í íslensku háskóla-
samfélagi. Greinarnar sem rannsóknin tók til voru eðlisfræði, rafmagns- og tölvuverk-
fræði, stærðfræði og tölvunarfræði. Rannsóknin var eigindleg viðtalsrannsókn unnin í
anda etnógrafíu félagslegra tengsla og byggðist á opnum viðtölum við tíu kvenstúdenta.
Leitast var við að greina félagslega og menningarlega áhrifavalda í daglegu lífi kven-
stúdenta í raungreinum. Í ljós kom að fjölbreytt orðræða einkennir menningu deildanna.
Niðurstöðurnar sýna jafnframt að karllæg viðmið eru ráðandi innan raunvísindageirans
og endurspeglast það bæði í jafningjamenningu og námstilhögun. Sú orðræða og menning
sem ríkjandi er innan greinanna á þátt í að viðhalda núverandi kynjamynstri. Til að komast
inn í félagslíf og eignast vini verða nemendur að ganga í takt við viðteknar hefðir og jafnvel
sætta sig við grófan eða hrokafullan húmor. Þetta getur reynst hindrun fyrir þau sem ekki
samsama sig karllægri ímynd. Ríkjandi einstaklingshyggja litar umræðu um jafnréttismál
og endurspeglar þá sýn að jafnréttisaðgerðir séu óþarfar, og jafnvel óréttmætar.
„Kannski erum við orðnar svo miklar
strákastelpur að það haga sér allir eins“
Um orðræðu og áhrifavalda í menningu raun- og
tæknivísindagreina
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir og Þorgerður Einarsdóttir
Háskóla Íslands
Ritrýnd grein
Tímarit um menntarannsóknir /
Journal of Educational Research (Iceland) 8, 2011, 103.-123.