Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Blaðsíða 127
127
Virk námskrá í íslensku í 6. og 7. bekk grunnskóla í ljósi samræmda íslenskuprófsins í 7. bekk
eðlilegt að velta fyrir sér hvort líklegt sé að
breytt tilhögun kennslu og náms í íslensku
á unglingastigi muni fylgja í kjölfar hins
breytta hlutverks samræmda prófsins. Því
verður þó ekki svarað á óyggjandi hátt
nema með nýrri rannsókn. Í þessari grein
verður aftur á móti greint frá niðurstöðum
rannsóknar á íslenskukennslu á miðstigi
og fengist við eftirfarandi meginspurn-
ingu: Hvað einkennir tilhögun kennslu og
náms í íslensku í 6. og 7. bekk í fjórum íslensk-
um grunnskólum og að hvaða marki tekur sú
tilhögun mið af samræmda prófinu í íslensku í
7. bekk? Með því er leitað vísbendinga um
það hvort líklegt megi telja að breytt hlut-
verk samræmda prófsins í 10. bekk valdi
straumhvörfum í íslenskukennslu á ung-
lingastigi.
Hugtakalíkan rannsóknarinnar
Sú meginhugmynd að ekki sé unnt að
reiða sig á að raunverulegt skólastarf – og
þar með námsreynsla og árangur nemenda
– verði að öllu leyti í samræmi við fyrir-
mæli opinberrar námskrár var mikilvæg
í rannsókninni og liggur til grundvallar
hugtakalíkani hennar (1. mynd). Líkanið
er byggt á þremur námskrárhugtökum en
þau eru: Áformuð námskrá, virk námskrá
og áunnin námskrá (van den Akker, 2003).
Áformaða námskráin svarar til opinberra
markmiða og annarra fyrirmæla stjórn-
valda um kennslu og nám og þeirra meg-
inhugmynda sem búa að baki henni. Þar
með má líta á hugmyndina um námskrár-
staðla, samræmd próf og ábyrgðarskyldu
sem hluta af henni. Virka námskráin svar-
ar til þess hvernig sú áformaða kemur til
Lö
g,
A
ða
ln
ám
sk
rá
, a
ðr
ar
re
gl
ug
er
ði
r o
g
sa
m
ræ
m
d
pr
óf
U
pp
sk
er
a
ne
m
en
da
Kennsla:
Inntak, tilhögun,
námsmat, námsaðlögun
Nám:
Eiginleikar og forsendur,
Námsáhugi og námshættir
nemenda
Áformuð
námskrá
Kenn-
arar
Virk
námskrá
Áunnin
námskrá
K
en
ns
lu
hu
gm
yn
di
r,
þe
kk
in
g
og
h
æ
fn
i,
sj
ál
fs
-
tra
us
t o
g
líð
an
, f
ag
m
en
ns
ka
o
g
-h
ug
m
yn
di
r
1. mynd. Hugtakalíkan rannsóknarinnar