Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 22
Tillaga að starfsreglum um kirkjuráð, 17. mál 1999.
Nú liggur fyrir ný tillaga að starfsreglum um kirkjuráð. Staða kirkjuráðs er skilgreind
með enn skýrari hætti en verið hefur m.a. sem framkvæmdaaðili kirkjuþings. Verður
fjallað nánar um þessar starfsreglur hér á eftir.
Tillaga til þingsályktunar um endurmenntun presta, 28. mál 1999.
Málinu var vísað til kirkjuráðs og ráðinu falið að láta vinna markvissa áætlun um
endurmenntun/símermtun presta. Kirkjuráð vísaði máli þessu til dr. Sigurðar Ama
Þórðarsonar og fól honum í samráði við stjóm Prestafélags Islands að hafa forgöngu
um vinnu við að skipuleggja áætlun um endurmenntun presta. Með skýrslu þessari
fylgir greinargerð sem felur í sér tillögu þeirra. Lagt er til að stofhuð verði nefnd sem
vinni tillögur um hvemig best verði að símenntun/endurmenntun presta staðið og skili
kirkjuráði tillögum að starfsreglum fyrir 15. september 2001. Kirkjuráð hefur
samþykkt þessa tillögu hópsins og mun skipa nefnd þessa á næstunni.
Tillaga til þingsályktunar um sönghefti fyrir blandaða kóra, 32. mál 1999.
Tilmælum var beint til kirkjuráð að það styrkti útgáfa þessa. Kirkjuráð ákvað að
leggja fé til Skálholtsútgáfunnar vegna undirbúnings þessa heftis og greiða vinnu hóps
organista og presta sem hafa starfað að framgangi málsins.
Tillaga til þingsályktunar um ábyrgðarsjóð kirkjunnar, 35. mál 1999.
Nú liggja fyrir þinginu tillögur og verða þær ræddar hér síðar í skýrslunni.
Tillaga til þingsályktunar um sumarkirkjur, 36. mál 1999.
Kirkjuráð fól lögffæðingi kirkjuráðs að vinna að tillögum. í tillögum að starfsreglum
um kirkjur og safnaðarheimili sem hér verða kynntar síðar er gert ráð fyrir nýju
stjómkerfi sem gerir kleift að taka á þessum málum.
Mál sem vísað var til forseta kirkjuþings.
Tillaga að starfsreglum um fræðslu fýrir leikmenn innan þjóðkirkjunnar, 8. mál 1999.
Tillaga að starfsreglum um söngmál og tónlistarffæðslu þjóðkirkjunnar, 9. mál 1999.
Tillaga að starfsreglum um sérhæfða þjónustu kirkjunnar við fjölskylduna, 10. mál
1999.
Forseti hefur undirbúið starfsreglur þessara þriggja mála á gmndvelli samþykktar
kirkjuþings að höfðu samráði við stjómir stofnananna og kirkjuráð. Nú flytur
kirkjuráð mál þessi á nýjan leik.
Tillaga að starfsreglum um handleiðslu fyrir presta og djákna, 22. mál 1999.
Forseti hafði samráð við biskup um mál þetta þar sem handleiðsla fýrir presta og
djákna er eitt af því sem lýtur að starfsmannamálum og fellur undir verkahring
biskups íslands. Því var talið eðlilegt að vinna að þessu málefni í sem mestri
samvinnu við starfshóp um símenntun og endurmenntun þar sem mn svo skyld
málefni er að ræða. Ákveðið var að bíða með að leggja ffam starfsreglur um
handleiðslu þar til vinnuhópurinn um endurmenntun hefur lokið störfum.
Mál sem vísað var til biskupafundar.
Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæmi, nr. 731/1998, 5. mál 1999.
18