Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Side 28
í fimm efniskafla. Er gert ráð fyrir að auðvelt verði að uppfæra safhið árlega eða oftar,
með því að gefa út nýja kafla eins og við á. Þá er sömuleiðis búið að gefa út
lagasafhið á vefnum og er það aðgengilegt ffá heimasíðu þjóðkirkjunnar.
Gerðir kirkjuþings.
Gerðir kirkjuþings og umræður eru nú birtar á kirkjuveíhum. Akveðið var að breyta
gerðum kirkjuþings þannig að einvörðungu eru birt ávörp, skýrsla kirkjuráðs,
málaskrá, yfirlit um dagskrá, atkvæðagreiðslur og hinar endanlegu samþykktir
kirkjuþings. Árbók kirkjunnar gagnast hvað varðar skýrslur einstakra embætta og
stofhana og fleira í þeim dúr og þykir ekki ástæða til að birta þær í gerðum
kirkjuþings.
Kristnihátíð-Kirkjudagar.
Kirkjuráð fjallaði um kristnihátíð á Þingvöllum og umræður í þjóðfélaginu um hana
og um leið stöðu þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð hefur og samþykkt að efna til Landsþings
kirkjunnar, Kirkjudaga, á sumri komanda og hefur tilnefnt fulltrúa sinn í stýrihóp.
Málefni Löngumýrar.
Eins og fýrr segir hélt kirkjuráð einn fund á Löngumýri þar sem Löngumýramefnd
mætti til að ræða framtíð Löngumýrar. í ffamhaldi af því var Hallgrími Magnússyni
kirkjuráðsmanni svo og fjármálastjóra biskupsstofu falið að móta drög að
framtíðarsýn og stefnu fýrir Löngumýri. Kirkjuráð var sammála þeirri meginstefnu
sem þar var mörkuð um að Langamýri verði kyrrðarsetur kirkjunnar og
meginhugmyndum hvað varðar endurbætur og uppbyggingu. Löngumýramefnd voru
sendar framkomnar hugmyndir til umsagnar. Inn í þessa vinnu kom samþykkt
aðalsafnaðarfundar Víðimýrarsóknar um byggingu kirkju á Löngumýri og fannst
kirkjuráði framkomin hugmynd áhugaverð, sérstaklega ef fleiri sóknir kæmu að
málinu. í framhaldi af þessari vinnu var samþykkt að gera þjónustusamning við
Löngumýramefnd þar sem nefndinni er falin ábyrgð á rekstri staðarins samkvæmt
nánari tilgreindum forsendum um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun. Þar kemur
m.a. fram að Löngumýramefhd ræður forstöðumann og fólk til sérverkefha innan
marka samningsins. Samningurinn verður endurskoðaður að þremur árum liðnum.
Skálholt.
Kirkjuráð fundaði í Skálholti eins og venja er. Staðarfólk undir forsæti vígslubiskups
sat fundinn. Einnig kom skólaráð Skálholtsskóla á fund kirkjuráðs. Ræddar vom m.a.
hugmyndir um stækkun á skólanum sem gæti orðið til að auka hagkvæmni í rekstri.
Stofnkostnaður er talinn um 100-120 milljónir. Kirkjuráð samþykkti að skoða
sérstaklega tillögur skólaráðs um viðbyggingu með tilliti til framtíðaruppbyggingar
staðarins. Sú vinna er hafin.
Einnig voru kynntar teikningar landslagsarkitekts af sumarbústaðalóðum sem verða til
útleigu til kirkjulegra aðila. Þegar hefur komið ffam ósk frá starfsmannafélagi
kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma um sumarhúsalóði. Kirkjuráð samþykkti að
ganga til samninga um leiguland og fól vígslubiskupi ffamkvæmd málsins að höfðu
samráði við kirkjuráð.
24