Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Síða 34
Starfsreglur um kirkjuráð
3. mál, flutt af kirkjuráði ásamt breytingartillögu frá Gunnari Kristjánssyni.
1. gr. Kirkjuráð starfar á grundvelli laga nr. 78/1997 um stöðu, stjóm og starfshætti
þjóðkirkjunnar.
2. gr. Kirkjuráð er, auk biskups Islands, sem er forseti ráðsins, skipað Ijórum
mönnum, tveimur guðfræðingum og tveimur leikmönnum, sem kirkjuþing kýs.
3. gr. Kirkjuráð fer með framkvæmdavald í málefnum þjóðkirkjunnar eftir markaðri
stefnu laga og samþykkta kirkjuþings. Ráðið fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu
verkefna þjóðkirkjumiar sem lög og stjómvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er
til þess, m.a. af hálfu kirkjuþings, prestastefhu, samtökum leikmanna, Alþingis og
ráðherra.
Kirkjuráð hefur aðsetur á biskupsstofu.
Kirkjuráð ræður framkvæmdastjóra og setur honum erindisbréf sem skal kynnt á
kirkjuþingi. Framkvæmdastjóri framfylgir ákvörðunum ráðsins og hefur umsjón og
eftirlit með störfum og verkefnum á vegum þess skv. nánari fyrirmælum ráðsins.
4. gr. Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta kirkjuþings.
5. gr. Kirkjuráð skal gera grein fyrir helstu ákvörðunum sínum og starfsemi ffá síðasta
kirkjuþingi hveiju sinni, sbr. starfsreglur um kirkjuþing. Með skýrslu kirkjuráðs skulu
fýlgja skýrslur kirkjulegra stofnana og stjóma sem heyra undir ráðið eða kirkjuþing
óskar eftir. Einnig skal leggja ffam heildaryfirlit yfir fjármál þjóðkirkjunnar og
fjárhagsstöðu sjóða og verkefha. Skylt er að leggja ffam í þingnefndum hverjar þær
upplýsingar sem óskað er eftir á þingfundi eða í nefndum, nema lög mæli á annan
veg.
Fjárhagsáætlun fýrir næsta almanaksár ásamt endurskoðuðum reikningum liðins árs
skal leggja fram til umræðu og ályktunar.
6. gr. Kirkjuráð framfýlgir, í samráði við forseta kirkjuþings, stefnumörkun þingsins
og samþykktum þess, svo og ákvæðum starfsreglna þess.
7. gr. Kirkjuráð undirbýr af hálfu þjóðkirkjunnar tillögur til fjárveitinga til hennar á
fjárlögum og hefur yfirumsjón með ráðstöfun og varðveislu fjár sem veitt er af
opinberri hálfu til kirkjulegrar starfsemi.
8. gr. Kirkjuráð fer með stjóm eftirtalinna sjóða kirkjunnar og ber ábyrgð fyrir
kirkjuþingi á stjóm þeirra:
a) Kristnisjóðs, sbr. lög um Kristnisjóð o.fl. nr. 35/1970
b) Jöfnunarsjóðs sókna, sbr. lög um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987 og reglugerð um
Jöfnunarsjóð sókna nr. 206/1991
c) kirkjumálasjóðs, sbr. lög um kirkjumálasjóð nr. 38/1993
d) sjóða þar sem svo er mælt fyrir í skipulagsskrá eða sambærilegum heimildum.
9. gr. Úthlutun úr sjóðum kirkjunnar og starfsemi á þeirra vegum skal hagað til
samræmis við lög og önnur fyrirmæli. Úthlutun úr Kristnisjóði og kirkjumálasjóði
skal að jafnaði vera lokið fyrir upphaf næsta úthlutunarárs og úr Jöfhunarsjóði sókna
samkvæmt því sem mælt er fyrir í lögum og reglum um sjóðinn á hveijum tíma.
Arsreikningar sjóða vegna næstliðins árs skulu að jafhaði hafa verið lagðir fram og
30