Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 36
c) taka afstöðu til áffýjunar úrskurða úrskurðamefndar og hafa yfirumsjón með því að
úrskurðum úrskurðamefndar og áfrýjunamefhdar sé ffamfylgt sbr. starfsreglur um
úrskurðamefnd og áffýjuname&d
d) ábyrgjast, ásamt öðrum kirkjulegum stjómvöldum, að farið sé að jafhréttislögum
og að einstökum ákvæðum jafnréttisáætlimar kirkjunnar sé ffamfylgt
e) gefa út lög og reglur á sviði kirkjumála og annast dreifmgu og kynningu þeirra með
viðhlítandi hætti
f) svara fyrirspumum kirkjuþings sem til þess er beint
g) veita úrlausn í málum sem skotið er til ráðsins með stjómsýslukæru vegna
ákvarðana eða aðgerða kirkjulegra aðilja sem undir það heyra.
Leikmenn í kirkjuráði sitja leikmannastefhu, sbr. starfsreglur um leikmannastefhu.
16. gr. Kirkjuráð heldur fund mánaðarlega að jafnaði. Heimilt er að fella niður einn
fund á tímabilinu júní - ágúst ár hvert. Forseti ráðsins getur boðað til aukafundar ef
brýna nauðsyn ber til. Einnig skal halda fund ef tveir eða fleiri kirkjuráðsmenn óska
þess.
Fund skal boða með dagskrá, bréflega eða í tölvupósti, með viku fyrirvara að jafnaði.
Jafnframt skulu erindi sem óskað er eftir að tekin séu fyrir í kirkjuráði hafa borist fyrir
fundarboðun.
17. gr. Kirkjuráð ræður sér fundarritara. Hann ritar fundargerð sem borin skal upp til
samþykktar á fundinum eða send kirkjuráðsmönnum eigi síðar en viku effir fundinn til
samþykktar. í fundargerð skal greina stutt og skilmerkilega frá ffamlagningu máls og
niðurstöðu í því. Fundargerð skal send kirkjuþingsmönnum þegar effir að hún liggur
fyrir. Samþykkt fundargerð er opinber og öllum aðgengileg, nema lög mæli fyrir um
annað.
18. gr. Forseti kirkjuráðs stýrir fundi. í forföllum biskups eða kærumáli sem biskup
telst vanhæfur til ákvörðunar í, skal sá vígslubiskup sem eldri er að biskupsvígslu
stýra fundi, sbr. 15. gr. laga nr. 78/1997. Fresta skal afgreiðslu máls til næsta fundar ef
tveir eða fleiri kirkjuráðsmenn óska þess en þeir geta ekki krafist ffests öðru sinni.
19. gr. Forseti kirkjuþings situr fundi kirkjuráðs þegar málefhi er varða kirkjuþing,
undirbúning þess eða framkvæmd samþykkta þess eru til umfjöllunar. Kirkjuráð getur
óskað eftir því í samráði við forseta kirkjuþings að formenn fastra þingnefnda, einn
eða fleiri, mæti á fundi ráðsins.
20. gr. Vígslubiskupar sitja fundi kirkjuráðs þegar sérstök málefni
vígslubiskupsstólanna eða embættanna eru rædd svo og þegar úthlutað er úr
Kristnisjóði.
21. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru skv. heimild í 59. gr. laga um stöðu stjóm og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar 2001.
32