Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Síða 43
Stefnumörkun um framtíðarskipan
sókna, prestakalla og prófastsdæma
5. mál, flutt af biskupafundi
Kirkjuþing 2000 samþykkir eftirfarandi stefhumörkun um framtíðarskipan sókna,
prestakalla og prófastsdæma.
Framtíðarskipan sókna, prestakalla og prófastsdæma
Inngangur
Skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma myndar umgjörð um hið almenna starf
þjóðkirkjunnar í söfnuðum, prestaköllum og prófastsdæmum. Mikilvægt er að
skipulagið byggist á hagkvæmni og skilvirkni og að tekið sé mið af aðstæðum í hverju
tilviki. Jafnframt þarf að líta til sögunnar og venjunnar. Eftirfarandi stefnumörkun er
byggð á þessum þáttum.
Um skipan sókna
Þegar ályktað er um afmörkun sókna skal litið til mannfjölda og landfræðilegra
marka. Leitast skal við að sóknarmörk fylgi almennum landfræðilegum og
félagslegum mörkum. Landfræðileg mörk í dreifbýli eru m.a. fjöll, firðir og ár. í
þéttbýli eru það einnig mörk byggða- og skólahverfa, stórar umferðaræðar og fleira.
Taka skal tillit til sveitarfélaga og annarra félagslegra þátta. Mat sóknarbama sjálfra
verður að ráða stærð og mannfjölda viðkomandi sókna að meginstefnu til, enda sé það
byggt á gildum rökum. í hraðvaxta byggðahverfum er eðlilegt að kirkjustjórnin hafi
fmmkvæði að því að skipuleggja og stofna nýjar sóknir fram í tímann, jafnvel áður en
hverfi byggjast.
Miða skal við að sókn hafi a.m.k. 500.000,- kr. í tekjur af sóknargjöldum á ári, til að
geta haldið uppi lágmarksþjónustu og viðunandi stjómsýslu. Af því leiðir að ekki
skulu vera færri en 100 gjaldendur sóknargjalda í sókn að jafnaði.
Heppilegasta og eðlilegasta tala sóknarbama í sókn er 150 - 1500 sóknarböm í hverri
sókn í dreifbýli en allt að 10.000 í þéttbýli.
Um skipan prestakalla
Prestaköll eru skilgreindar grunnþjónustueiningar prestsþjónusturmar samkvæmt
lögum m. 78/1997, en sóknir mynda prestakall, eins og segir í 48. gr. laganna.
Þjónusta kirkjunnar felst í eftirtöldu:
a) reglubundnu helgihaldi árið um kring
b) almennri prestsþjónustu í boðun, uppfræðslu og stuðningi
c) skím, fermingu, hjónavígslu, greftrun
d) safnaðarstarfi; margvíslegu félagsstarfi í söfnuði
e) vitjunum sjúkra, einstæðra og þeirra sem eiga um sárt að binda; þjónustu á
stofnunum
f) sálusorgun og trúnaðarsamtölum; hlusta, uppörva, hughreysta og styðja
g) opinberri og óopinberri sáttaumleitan
h) þátttöku í samfélaginu; t. d. við margs konar hátíðir eða atburði
i) margvíslegri fýrirgreiðslu, þjónustu, aðstoð og stuðningi við fólk í daglegu lífi.
Af þessu leiðir að þörf er á ijölskipuðu liði presta á hverju starfssvæði. í þéttbýli skal
stefnt að því að í hverju prestakalli starfí tveir eða fleiri prestar saman. í prestaköllum
39