Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Side 47
Nefndarálit löggjafamefndar
Málið er sameinað 27. máli. Nefndin hefur fjallað um málið sem er að hluta til byggt á
5. máli kirkjuþings 1999.
Bent er á að æskilegt er að ítarlegri upplýsingar séu almennt lagðar fram með tillögum
um breytingar á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma, svo sem upplýsingar um
íbúafjölda, kort af svæði því sem til umfjöllunar er o.s.frv.
Umsagnir hafa borist til kirkjuþings frá héraðsfundum og ýmsum öðrum kirkjulegum
aðilum. Löggjafamefnd leggur til að fallist verði á meðíylgjandi breytingatillögur
enda hafa þær fengið úrlausn skv. ákvæðum starfsreglna nr. 731/1998.
A.
Vegna tillögu um tilfærslu Miðgarðasóknar í Grímsey, til Dalvíkurprestakalls,
Eyj afj arðarprófastsdæmi er rétt að benda á að til embættis héraðsprests í Eyjaljarðar -
og Þingeyjarprófastsdæmum var stofnað aðallega til að bæta þjónustu við Grímsey.
Með það í huga er því beint til hlutaðeigandi héraðsnefnda og annarra
kirkjustjómaraðila að gæta þess að Grímseyingar njóti þeirra ráðstafana t.d. þannig að
héraðsprestur sinni sérstaklega þjónustu í sóknum Dalvíkurprestakalls og styðji
þannig þjónustu við Miðgarðasókn.
Litið er svo á að tilfærsla Melgraseyrar - og Nauteyrarsókna úr Staðarprestakalli, sem
er í umdæmi vígslubiskups í Skálholti til Hólmavíkurprestakalls,
Húnavatnsprófastsdæmi, feli í sér breytt mörk stiftanna. Slík tilfærsla þarfnast
samþykktar tveggja þinga, sbr. 18. gr. þjkl. nr. 78/1997. Það er því kirkjuþing 2002
sem endanlega getur staðfest nefnda breytingu á mörkum og er því bráðabirgðaástand
ríkjandi á meðan þ.e. að sóknimar tvær tilheyra Skálholtsstifti.
Um sérákvæði um gildistöku stofnunar Grafarholts- og Vallaprestakalla, sem er
frestað til 2002 og 2003, er litið til þróunar íbúaijölda á svæðinu og þess vegna gerð
þessi sérstaka skipan. Ef aðstæður eða forsendur breytast er vitaskuld unnt að breyta
gildistökuákvæðum á næsta eða þarnæsta kirkjuþingi.
B.
Þær tillögur biskupafundar, sem lagt er til að verði frestað eða þarfnast frekari
umfjöllunar, eru eftirtaldar:
I Rangárvallaprófastsdæmi
Ofanleitissókn og Vestmannaeyjaprestakall tilheyri Rangárvallaprófastsdæmi.
Lagt er til að umræðan um breytt skipulag haldi áfram, og er í því sambandi vísað til
starfs nefndar um þjónustuþörf í prestaköllum sbr. 34. mál kirkjuþings 1999.
I Reykjavíkuprófastsdæmi eystra
Löggjafamefnd leggur til að tillaga biskupafundar um stofnun Lindasóknar,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, verði vísað aftur til biskupafundar og nefndar um
könnun á þjónustuþörf í prestaköllum, til nánari umfjöllunar. Nefndin telur brýnt að
lokið verði skipulagsvinnu og undirbúningi það tímanlega, að málið verði lagt fyrir
kirkjuþing 2001.
43