Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 51
til að kaupa upp eldri framkvæmdir á jörðum. Ljóst er að lausaíjár vandi sjóðsins
hefur vaxið á þessu ári og er ástæða til að ítreka það sem sagt var í síðustu skýrslu um
að full þörf sé á framlagi frá “eigendum” sjóðsins til þess að sjóðurinn geti staðið við
þær skyldur sem honum eru faldar.
Reykjavík, 9. október 2000
Að tillögu ljárhagsnefndar samþykkir kirkjuþing eftirfarandi
ÁLYKTUN
Kirkjuþing samþykkir endurskoðaðan ársreikning sjóðsins vegna 1999.
Kirkjuþing samþykkir ijárhagsáætlim prestssetrasjóðs fyrir árið 2001 sem er
meðfylgjandi. Áætlunin kann að breytast í samræmi við heimildir um kaup og sölu
prestssetra.
Kirkjuþing heimilar kaup á prestsbústað í Útskálaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi
og sölu á prestssetrinu Bólstað í Húnavatnsprófastsdæmi
og íbúðarhúsinu að Hálsi II í Þingeyjarprófastsdæmi með leigulóð.
Kirkjuþing ályktar eftirfarandi um málefni prestssetrasjóðs:
1. Áhersla verði lögð á að ljúka gerð haldsbréfa við alla sóknarpresta svo fljótt sem
við verður komið. Prestum án haldsbréfa verði synjað um þjónustu sjóðsins og aðra
fyrirgreiðslu þar sem því verður við komið.
2. Unnið verði að reglum um meðferð og ráðstöfun greiðslumarks sauðljár á
prestssetursjörðum. Til greina komi að sjóðurinn verði eigandi greiðslumarks sem
komi síðan til úthlutunar gegn leigu á prestssetrum þar sem góð aðstaða fyrir
sauðfjárbúskap er fyrir hendi. Leita skal samráðs og samvinnu við þá aðila sem
einkum varða málið, en reglumar komi síðan til staðfestingar á kirkjuþingi 2001.
3. Lögð er áhersla á að kirkjuráð veiti sjóðsstjóm aðstoð við að treysta fjárhag
sjóðsins og er þar einkum horft til ábyrgða, lántöku og fleiri þátta sem styrkt geta
hann.
4. Unnið verði að útgáfu fréttabréfs, 1-2 á ári þar sem greint væri frá störfum
sjóðsstjómar. Jafnframt verði þar gefnar upplýsingar um nýbyggingar, viðhald og
aðrar framkvæmdir.
5. Nauðsynlegt er í framhaldi af breyttum starfsreglum og ályktun um sjóðinn á
kirkjuþingi 1999 að færa fymingarsjóð með tekjum og gjöldum fyrir hvert prestssetur.
6. Því er beint til stjómar sjóðsins að hún leiti sem flestra leiða til að auka tekjur hans
og hagræða í rekstri.
47