Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Qupperneq 72
Starfsreglur um breyting á starfsreglum um úrskurðarnefnd og
áfrýjunarnefnd nr. 730/1998
17. mál, flutt af kirkjuráði og 23. mál, flutt af Halldóri Gunnarssyni
1. gr. Framan við 1. mgr. 6. gr. bætist nýr ml. svohljóðandi: Urskurðamefnd kannar,
áður en málsmeðferð hefst, hvort viðhlítandi sáttaumleitanir hafi farið fram. skv.
gildandi starfsreglum hverju sinni.
I stað orðanna “vikið úr starfi” í 3. mgr. komi: veitt leyfi frá starfi.
2. gr. 17. gr. orðist svo: I úrskurði vegna agabrota getur nefndin gripið til eftirfarandi
úrræða:
a. lagt til að starfsmanni verði veitt áminning, eftir atvikum með skilyrðum
eða leiðbeiningum eða nánari fyrirmælum um rétta starfshegðun,
b. mælt fyrir um að hann skuli fluttur til í starfi,
c. mælt fyrir um að hann skuli ekki gegna núverandi starfi eða sambærilegu
starfi eða köllun á kirkjulegum vettvangi um ákveðið tímabil eða til
frambúðar eða
d. lagt til endanlega brottvikningu hans úr hvaða starfi sem er á kirkjulegum
vettvangi sem valdsvið nefndarinnar nær til.
3. gr. 19. gr. orðist svo: Málsaðilar bera sjálfir kostnað sinn vegna meðferðar máls
fyrir úrskurðamefnd. Kristnisjóður greiðir að jafnaði kostnað við störf
úrskurðamefndar, sbr. 35. gr. Heimilt er þó nefndiruii að ákveða að annar eða báðir
málsaðilar greiði kostnaðinn.
4. gr. 32. gr. orðist svo: Úrskurðir úrskurðamefndar og áfrýjunamefndar skulu liggja
fyrir á skrifstofu kirkjustjómarinnar til afhendingar þar í ljósriti á kostnaðarverði ef
óskað er, nema lög mæli annan veg.
5. gr. 34. gr. orðist svo: Málsaðilar greiða að jafnaði allan kostnað við störf
áfrýjunamefndar. Nefndin getur þó ákveðið að fella málskostnaðinn að hluta til eða
öllu leyti á annan málsaðila.
Ef telja má sanngjamt og eðlilegt, eða þyki hagsmunir þeir sem til úrlausnar eru svo
mikilvægir eða hafa umtalsverða almenna þýðingu að mati áffýjunamefndar, getur
nefndin ákveðið að Kristnisjóður greiði allan málskostnað.
6. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru samkvæmt heimild í 12., 13. og 59. gr. laga
um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast þegar gildi.
68