Gerðir kirkjuþings - 2005, Page 25
- Viðmiðunarreglur um greiðslur sókna til launaðra starfsmanna fyrir störf í þágu
kirkjunnar.
Starfshópur hefur unnið að samningu þessara reglna, en um nokkuð vandasamt og
flókið mál er að ræða. Málið snýst um það að setja reglur um hvað innifalið sé í
sóknargjöldum og hvort og þá hvaða þjónustu sóknarbömum beri að greiða sérstaklega
fýrir. Jafnffamt að starfsmönnum sókna sé óheimilt að þiggja greiðslur beint frá
sóknarbömum. Gerð verður könnun meðal sóknamefhda um greiðslur launaðra
starfsmanna. Vonast til að verkefiiinu ljúki á næsta ári.
- Virkt eftirlit Biskupsstofu með skilum ársreikninga.
Settar hafa verið reglur um þetta mál sem eiga að gilda til reynslu í eitt ár. Reglumar
fýlgja skýrslu þessari. Þær gilda fýrir næsta ár.
- Hugsanleg breyting á lögum og reglugerðum um sjóði kirlgunnar
Þar sem samþykktar hafa verið breytingar á umsýslu Kirkjumálasjóðs og Kristnisjóðs,
eins og fýrr segir, telur Kirkjuráð að meginmarkmið tillögunnar hafi náðst fram og að
rétt sé að bíða með frekari vinnu að svo stöddu.
Greiðslur fyrir skím og fermingarfræðslu
Vísað er til umfjöllunar hér að ffarnan um þetta málefhi.
3. mál Kirkjuþings 2004 um breytingu á skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma
Kirkjuþing samþykkti sameiningu ísafjarðar- og Barðastrandarprófastsdæma í
Vestfj arðaprófastsdæmi. Starfsreglur þessar vora birtar í Stjómartíðindum auk
tilkynninga til hlutaðeigandi aðila. Sameiningin öðlaðist gildi 1. ágúst 2005, en þá lét
sr. Bragi Benediktsson sóknarprestur í Reykhólaprestakalli og prófastur
Barðastrandarprófastsdæmis af embætti. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs mætti til
ráðgjafar á sameiginlegan fund héraðsnefiidanna sem var haldinn til undirbúnings
sameiningunni og síðustu héraðsfunda prófastsdæmanna fýrir sameiningu. Er að mörgu
að huga þegar sameinað prófastsdæmi verður til s.s. varðandi trúnaðarstörf, skipun
nýrrar héraðsnefhdar, uppgjör héraðssjóða o.fl. Virðist Kirkjuráði allt þetta hafa tekist
farsællega.
4. mál Kirkjuþings 2004. Starfsskýrsla Prestssetrasjóðs l.júlí 2003 til 30. júní 2004
Kirkjuþing ályktaði m.a. eftirfarandi um málið:
"Ljóst er af skuldastöðu sjóðsins að tekjur hans til að standa undir lögboðnum rekstri
hafa verið vanáætlaðar allt frá stofnun hans 1994 og er brýnt að bregðast við því.
Kirkjuþing álítur að nauðsyn beri til þess að skýra nánar með skýrslu og lögffæðilegu
áliti stöðu presta á prestssetursjörðum".
Mál þetta er ekki á verksviði Kirkjuráðs, heldur stjómar Prestssetrasjóðs, en tengist þó
samningaviðræðum kirkjunnar og ríkisins um prestssetur að því er varðar vanreiknaðan
stjómunarkostnað, sbr. umfjöllun um 2. mál Kirkjuþings hér að ffaman.
Stjóm Prestssetrasjóðs mætti á fund Kirkjuráðs til umræðna um málefhi sjóðsins, eins
og nánar er vikið að hér á eftir. Unnin hefur verið lögffæðileg álitsgerð um stöðu presta
á prestssetrum og fýlgir hún skýrslu þessari.
23