Gerðir kirkjuþings - 2005, Qupperneq 41
Nefndarálit
Á fund allsheijamefndar komu Sigríður Dögg Geirsdóttir fjármálastjóri Biskupsstofii,
Hörður Áskelsson, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, Kristinn Öm Kristinsson skólastjóri
Tónskólans og sr. Halldór Gunnarsson, kirkjuráðsmaður.
Allsheijamefiid hefur fjallað um skýrslu Kirkjuráðs og þakkar vandaða og ítarlega
framsetnmgu hennar svo og greinargóðar skýrslur stofnana, nefiida, ráða og félaga í
Arbók kirkjunnar. Með Árbókinni er hið víðfeðma svið sem kirkjan starfar á gert
sýnilegra og ber um leið vitni þess að kirkjan rækir hlutverk sitt á landsvísu, samkvæmt
Stefnu og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar 2004-2010. Um leið þakkar allsheijamefnd
starfsmönnum Biskupsstofu og Kirkjuráðs fyrir margvíslega þjónustu í kirkjunni, m.a.
við undirbúning mála og starfa á Kirkjuþingi og fýrir að vinna að framgangi þeirra
stefna og starfsáherslna sem samþykktar hafa verið á Kirkjuþingi á síðustu árum. Þá
þakkar allsheijamefhd góða uppbyggingu á vef kirkjunnar kirkjan.is og vekur athygli á
að þetta er einn virkasti miðill nútímans til að ná til bama og unglinga. Nefndin telur
því að þetta sé sá boðunarvettvangur sem síst megi vanmeta.
- Setningarræður
Allsheijamefhd lýsir ánægju með þau orð Bjöms Bjamasonar kirkjumálaráðherra við
setningu Kirkjuþings 2005 að í kirkjumálaráðuneytinu ríki enginn efi um gildi þess
ákvæðis stjómarskrár lýðveldisins, að hin evangelísk - lútherska kirkja skuli vera
þjóðkirkja á Islandi og skuli íslenska ríkið að því leyti styðja hana og styrkja.
Ennfremur tekur nefiidin undir þau orð ráðherra að það sé „fráleit hugmynd, að með
þjóðkirkjufýrirkomulagi okkar sé á nokkum hátt brotið á trúffelsi þeirra íslendinga, sem
af einhveijum ástæðum vilja standa utan þjóðkirkjunnar.“
Allsheijamefnd telur ástæðu til að Þjóðkirkjan haldi vöku sinni um stjómarskrárbundna
stöðu sína. Allsheijamefiid telur mikilvægt að stjómarskrámefhd berist formlegt erindi
frá Þjóðkirkjunni til að undirstrika mikilvægi 62. greinar stjómarskrárinnar.
Allsheijamefhd telur eðlilegt að skoða stöðu þeirra safnaða sem ekki njóta fjárstuðnmgs
úr opinberum sjóðum, umfram sóknargjöld. Nefiidin telur rétt að allir skráðir söfnuðir
njóti jafnræðis í þessum efiium.
Allsheijamefiid tekur undir orð biskups íslands hr. Karls Sigurbjömssonar við setningu
Kirkjuþings 2005 um mikilvægi Hjálparstarfs kirkjunnar til aðstoðar við þá sem líða
nauð, bæði hérlendis og erlendis. Þá tekur nefiidin undir orð biskups um mikilvægi þess
að heimilin í landinu nái jafnvægi milli fjölskyldulífs og atvinnulífs og fagnar þátttöku
þjóðkirkjunnar í átakinu Verndum bernskuna, þar sem mannhelgin er í fýrirrúmi.
Allsheijamefhd tekur heils hugar undir þau orð biskups í setningarávarpi á Kirkjuþingi
2005 að trú og umhyggja haldist í hendur og því beri þjóðkirkjunni, í orði og starfi, að
vera í stöðugu samtali við samtíð sína og stuðla að lífi og breytni í kærleika Krists.
39