Gerðir kirkjuþings - 2005, Blaðsíða 104
Störf Kirkjuþings við upphafþings.
21. gr.
Ákvæði þessa kafla fjalla um Kirkjuþing, önnur en fyrsta Kirkjuþing, að aflokinm
kirkjuþingskosningu.
22. gr.
Biskup setur Kirkjuþing og afhendir forseta að því búnu stjóm þingsins.
Á fyrsta fundi Kirkjuþings skal kjósa 1. og 2. varaforseta og tvo skrifara úr hópi
kirkjuþingsmanna.
Að loknu kjöri varaforseta og skrifara, skulu fastar þingnefndir þingsins kosnar, að
fengnum tillögum forseta og varaforseta þingsins. Þá skulu kosnir formenn fastra
þingnefiida.
23. gr.
Að loknu kjöri til fastra þingnefnda skal Kirkjuráð leggja fram skýrslu um störf sín og
yfirlit um reikninga Þjóðkirkjunnar, fjárhagsstöðu ársins og fjárhagsáætlun íÓTir næsta
ár. Að umræðu lokinni er þeim síðan vísað til hlutaðeigandi nefhda.
Þingfararkaup, ferða- og dvalarkostnaður.
24. gr.
Kirkjuþingsmenn og aðrir sem seturétt eiga á kirkjuþingi fá þingfararkaup fyrir hvem
dag sem þingið situr.
Ef varamaður er kvaddur til skal hann fá þingfararkaup fyrir hvem dag sem hann situr
þingið, en greiðsla til aðalmanns fellur brott sama thna.
Þóknananefhd ákveður laun kirkjuþingsfulltrúa.
Kirkjuþingsmenn sem eiga lengri leið á kirkjuþing en 50 km. frá heimili fá greiddan
akstur ffam og til baka eða flugfargjald og leigubílakostnað eftir því hvor ferðamátinn
er hagkvæmari. Þóknananefiid sker úr ágreiningi sem kann að koma upp um þetta efiii.
Dagpeningar skulu greiddir starfsdaga Kirkjuþings að viðbættum einum degi
samkvæmt reglum ríkisins um dagpeningagreiðslur.
Kirkjuþingsmenn sem ekki fá greidda dagpeninga fá greitt fyrir akstur umfram 100 km.
eftir ffamlögðum reikningi og fæði á þingstað starfsdaga þingsins.
Gildistaka.
25. gr.
Starfsreglur þessar sem settar em með heimild í 7. mgr. 21. gr. og 59. gr. laga um stöðu,
stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma
falla brott starfsreglur um Kirkjuþing nr. 729/1998.
Athugasemdir við tillögur þessar
Við undurbúning tillögu að starfsreglum um kjör til Kirkjuþings var það metið svo að
heppilegra væri að kljúfa núverandi bálk starfsreglna um Kirkjuþing nr. 729/1998 í tvo
bálka. Annars vegar starfsreglur um kjör til Kirkjuþings og hins vegar starfsreglur um
þingsköp Kirkjuþings. Þykir það til einfoldunar og reglumar verða aðgengilegri.
102