Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2010, Side 9
AF MERKINGARUSLA Í HEITUM HÁSKÓLAGREINA
9
um orðið „bókmenntir“ sé frá 1823. En þær upplýsingar eru misvísandi,
því frá miðri og ofanverðri 18. öld geymir Ritmálssafnið önnur dæmi um
sama orð, stafsett dálítið öðruvísi, „bókmentir“, „bókmenter“ eða jafnvel
„Book Mentir“. Hið síðasta er í raun elsta dæmið og lendir efst á síðunni
með leitarniðurstöðum þegar dæmum er raðað eftir aldri.5 Heimildin er
nafnlaust kvæði flutt yfir moldum Jóns Árnasonar Skálholtsbiskups 18.
febrúar 1743.6 Níunda erindið hljómar svo (frumlagið er hinn látni bisk-
up):
Kennemenn vanda villde best
Vijngardur Christs svo bloomgadest,
hvern hier umm hyrda aatte;
Mustere Drottens byggia baud
Bæle Ræningia (prijddur Aud)
Hws þau sijst hitta maatte;
Ahyggiu Skoolans einnig bar,
ydkan Book Menta jook og þar,
Ummvøndun enga sparde;
Hatande leida heimsens prackt
Heidvyrda Breytne took i Ackt,
a sijnum eigenn Garde.7
Svo yrkir hið nafnlausa skáld, sem áreiðanlega er sr. Egill Eldjárnsson
(1725–1802), um starf hins andaða biskups að latínuskólamálum í
Skálholti, og telst elsta þekkta dæmi í rituðu máli um íslenska nýyrðið
5 Íslenskt textasafn. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt 17. maí
2010 af lexis.hi.is/cgi-bin/ritmal/leitord.cgi.
6 „Einfallt enn þó hugheillt Ræktar-Merki, Við Frammliðnar Mollder þess Blessada
og nu i Gude Sætlega Burt-Sofnaða herra, Mag. Jons Arna Sonar Forðum Biskups
yfer Skaalhollts-Stipte I nockrum Samstædum Auglijst Af hanns Foosturs-Einum
Elskandi Syne“, Lifande Imynd Svo vel Guds Heima-Manna … Sem og eirnenn Sam-
Borgara þeirra Heiløgu … fyrer Siooner leidd i Einfalldre Lijk-Predikun … Saal. Mag.
Jons Arna-Sonar o.s.frv., Hólar: Halldór Eiríksson [prentari], 1748, bls. I 2r.
Bæklingur þessi geymir einnig líkpredikun sr. Vigfúsar Erlendssonar og erfiljóð á
latínu.
7 Skáletrun mín. Með nútímastafsetningu væri þetta svona: „Kennimenn vanda vildi
[Jón biskup] best / víngarður Krists svo blómgaðist, / hvern hér um hirða átti; /
musteri Drottins byggja bauð / bæli ræningja (prýddur auð) / hús þau síst hitta
mátti; / áhyggju skólans einnig bar, / yðkun bókmennta jók og þar / umvöndun
enga sparði; / hatandi leiða heimins prakt / heiðvirða breytni tók í akt, / á sínum
eigin Garði.“