Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2013, Page 157
156
Menningarleg viðmið og óformlegar venjur sem hafa í för með •
sér óréttmætar kvaðir eða misræmi í tækifærum milli tveggja hópa
eru kúgandi. Kynjaviðmið varðandi umönnun barna og aldraðra,
heimilisstörf, útlit, klæðaburð, menntun, starfsferil og svo fram-
vegis kúga konur.
Menningarlegar venjur og afurðir sem ala á neikvæðum staðal-•
ímyndum tiltekinna hópa eru kúgandi, ekki aðeins vegna þess að
þær eru móðgandi fyrir meðlimi viðkomandi hópa eða ala á fyrir-
litningu eða hatri gagnvart þeim, heldur einnig vegna þess að þær
geta haft brenglandi áhrif á dómgreind þeirra sem eru í áhrifastöð-
um. Við munum líta á nokkur slík dæmi hér á eftir.10
ég lagði til hér að framan að kúgun sé með mikilvægum hætti tengd mis-
beitingu valds. Þetta fellur vel að þeirri mynd að vald sé misnotað af ein-
staklingi sem beitir því án þess að skeyta um siðferðilegar skorður. En
hvernig fáum við botn í þetta þegar um kerfislæga kúgun er að ræða? Sé
aðeins einblínt á einstaklinga og misgjörðir þeirra er hætt við að horft sé
fram hjá því að félagslegt vald – það vald sem oftast er misbeitt við kúg-
andi kringumstæður – feli í sér tengsl: það hvílir á stofnunum og venjum
sem móta sambönd okkar hvers við annað.11 Þegar kerfi dreifa valdi með
ósanngjörnum hætti verður hið ólögmæta ójafnvægi valdsins að aðalatriði,
fremur en misbeiting einstaklings á valdi.
Til að mynda hafa háskólakennarar í sumu samhengi (þó ekki öllu)
meira vald en nemendur þeirra í krafti reglna, venja og væntinga sem gilda
hjá menntastofnunum. Einstaklingar geta aukið vald sitt með því að þróa
færni sína í að vinna innan hefðanna; þeir geta líka tapað valdi ef þeir skilja
þær ekki eða laga sig ekki að þeim. Ef samband viðkomandi kennara og
nemanda er byggt upp með sanngjörnum hætti má ætla að siðferðisbrest-
ir einstaklinga skýri ranglæti sem á sér stað innan þess. Hugsum okkur
tilfelli þar sem þær venjur og stofnanir sem hlutverk háskólakennarans
samanstendur af eru réttlátar en einstaklingurinn í því hlutverki, köllum
hann Stanley, gefur öllum hörundsdökkum konum sem taka námskeið-
10 dorothy E. Roberts, Shattered Bonds: the Color of Child Welfare, New york: Basic
Books, 2002, bls. 47–74.
11 Michel Foucault, The History of Sexuality, Volume I: An Introduction, þýð. Robert
Hurley, Vintage Books ed., New york: Random House, 1978 [1976]; Nancy Fraser,
„Foucault on Modern Power: Empiricial insights and Normative Confusions“,
Unruly Practices: Power, Discourse, and Gender in Contemporary Social Theory, Min-
neapolis: University of Minnesota Press, 1989, bls. 17–34.
SALLy HASLANGER