Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 79

Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 79
Nánar er fjallað um hlutverk gengisins í mótun pen- ingastefnu sem byggist á verðbólgumarkmiði í grein höfundar (2004). 5. Lokaorð Á undanförnum árum hefur fjöldi ríkja sem hefur tekið upp peningastefnu með formlegu verðbólgu- markmiði margfaldast. Í árslok 1993 voru fimm ríki á formlegu verðbólgumarkmiði og fimm árum síðar voru þau orðin tíu talsins. Fimm árum síðar hafði fjöldinn hins vegar u.þ.b. tvöfaldast aftur og nú byggir 21 ríki peningastefnu sína á formlegu verð- bólgumarkmiði. Margar ástæður hafa verið fyrir upptöku verð- bólgumarkmiðs í þessum ríkjum. Í sumum tilvikum hefur verið um eðlileg endalok mislangs þróunarferl- is peningastefnunnar að ræða eða formfestingu þeirr- ar stefnu sem í raun var fylgt. Í öðrum tilvikum var ástæðan endalok hrakningar seðlabankanna frá fyrri stefnu sem beðið hafði skipbrot eða áralöng óánægja með árangur hennar. Þó er sammerkt með þeim öllum að markmið kerfisbreytingarinnar var að miðla betur til almennings meginverkefni peningastefnunn- ar, að skapa skilvirkari ramma utan um stefnuna og ná betri stjórn á verðbólguvæntingum. Verðbólgumarkmiðsríkin eru fjölbreytt að stærð og gerð og staða þeirra við upptöku verðbólgumark- miðsins var einnig mjög ólík. Yfirleitt er um að ræða tiltölulega lítil eða meðalstór iðnríki eða tiltölulega stór þróunar- og nýmarkaðsríki. Verðbólgumark- miðsríkin eru einnig að jafnaði opnari fyrir alþjóða- viðskiptum og með minna skuldsettan ríkissjóð en sambærileg ríki sem ekki hafa tekið upp verðbólgu- markmið. Þau virðast jafnframt auðugri og með nokkuð þróaðri fjármálakerfi. Stofnanir hagkerfisins og staða seðlabankanna sjálfra var jafnframt mismunandi og einnig tiltrú og skilningur á hinni nýju stefnu. Sömuleiðis hefur framkvæmd og útfærsla stefnunnar verið með marg- víslegum hætti og tekið nokkrum breytingum í sum- um tilfellum eftir því sem reynsla og þekking hefur safnast fyrir. Eftir því sem lengri tími hefur liðið og fleiri ríki tekið upp þessa stefnu má þó segja að það 78 PENINGAMÁL 2004/1 Tafla 7 Stjórntæki peningamála Aðgerðamarkmið peningastefnu (fjöldi ríkja) Ríki Dagvextir (9) Ástralía, Brasilía, Chíle, Kanada, Kólumbía, Noregur, Nýja-Sjáland, Suður-Afríka, Suður-Kórea Skammtímavextir (9) Bretland, Ísland, Ísrael, Pólland, Sviss, Svíþjóð, Taíland, Tékkland, Ungverjaland Lausafjárstaða bankakerfis (3) Filippseyjar, Mexíkó, Perú Meginstjórntæki peningamála (fjöldi ríkja) Ríki Markaðsaðgerðir með endurhverfum viðskiptum (11) Ástralía, Bretland, Filippseyjar, Ísland, Kólumbía, Nýja-Sjáland, Perú, Sviss, Svíþjóð, Taíland, Tékkland Markaðsaðgerðir með ríkisverðbréfum Brasilía, Chíle, Ísrael, Mexíkó, Noregur, Pólland, Suður-Afríka, eða bréfum gefnum út af seðlabanka (9) Suður-Kórea, Ungverjaland Vaxtaband í gegnum nettóstöðu greiðslukerfis (1) Kanada Möguleg inngrip á gjaldeyrismarkaði (fjöldi ríkja) Ríki Ef gengisþróun ógnar verðbólgumarkmiði (4) Brasilía, Ísland, Noregur, Svíþjóð Við óeðlilegar sveiflur á gjaldeyrismarkaði (2) Ástralía, Tékkland Við sérstakar aðstæður á gjaldeyrismarkaði (7) Ástralía, Brasilía, Chíle, Ísland, Kanada, Noregur, Nýja-Sjáland, Til að byggja upp gjaldeyrisforða (3) Ísland, Kólumbía, Suður-Afríka Til að verja gengismarkmið (1) Ungverjaland Heimildir: Carare o.fl. (2002), Schaechter o.fl. (2000), Truman (2003) og heimasíður viðkomandi seðlabanka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.