Peningamál - 01.03.2004, Qupperneq 88
PENINGAMÁL 2004/1 87
og umsjón. Yfirstjórnin ber endanlega ábyrgð á því
að tryggja að viðeigandi innri eftirlitskerfi séu til
staðar, þar með talið áhættumatskerfi.
Góðum stjórnunarháttum má skipta í fjóra meg-
inþætti:
• Leiðbeiningar
• Framkvæmd
• Eftirlit
• Ábyrgð
Stofnanir á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(IMF) og Alþjóðlega greiðslubankann (BIS) hafa
hvatt til aukins gagnsæis í starfsemi seðlabanka og
þeim er í síauknum mæli ætlað að lúta sams konar
eftirliti og endurskoðunarviðmiðunum og viðskipta-
bönkum og fyrirtækjum almennt.
Sú kvöð sem lögð er á bankastjórnir með reglum
Alþjóðlega greiðslubankans um skilvirkt innra eftirlit
felur í sér:
• Ábyrgð á að samþykkja og endurskoða heildar-
stefnu bankans reglubundið.
• Að gera sér grein fyrir helstu áhættuþáttum bank-
ans og setja þeim viðunandi mörk.
• Að samþykkja stjórnskipulag bankans.
• Að tryggja að yfirstjórnendur fylgist með skil-
virkni innra eftirlitskerfis bankans.
Í stuttu máli: Á tímum upplýsingaskyldu og gagn-
sæis þurfa seðlabankar að beina sjónum að þrem
lykilþáttum eins og sést á mynd 1.
Tilurð góðra stjórnunarhátta
Skömmu eftir 1990 fór að bera á vaxandi gagnrýni í
Evrópu á gæði og umfang fjárhagsskýrslna og skil-
virkni sjálfstætt starfandi endurskoðenda í kjölfar
örlagaríkrar vanrækslu af ýmsu tagi, jafnt í einkageir-
anum sem og í þeim opinbera. Sem dæmi má nefna
fjármálaafglöp líkt og hjá Maxwell Communications
og BCCI, ferjuslysið við Zeebrugge og „dirty tricks“
herferð British Airways. Þetta leiddi til almennra efa-
semda meðal stjórnvalda, stofnana, fjárfesta og ein-
staklinga, starfsmanna fyrirtækja og almennings um
hlutverk stjórnenda, forstjóra, innri og ytri endur-
skoðenda og endurskoðunarnefnda.
Í Bretlandi varð þetta til þess að Cadbury nefndin
svokallaða var skipuð. Skilaði hún af sér skýrslu í
árslok 1992 og síðan aftur árið 1996. Í Cadbury
skýrslunni (1992), sem naut stuðnings Englands-
banka, kauphallarinnar í Lundúnum og samtaka end-
urskoðenda, var leitast við að setja verklagsreglur um
upplýsingaskyldu og fyrirkomulag endurskoðunar
hjá fyrirtækjum sem skráð voru í kauphöllinni. Cad-
bury skýrslan olli straumhvörfum þar sem hún boð-
aði hvað væru góðir starfshættir stjórnenda. Í skýrsl-
unni var fjallað um siðferði, réttsýni og heiðarleika
og þróuð skilgreining á góðum stjórnunarháttum sem
felur í sér heiðarleika, ráðvendni og upplýsinga-
Mynd 1
Áhættustýring: Hvernig eftirliti með áhættu í
starfsemi bankans er háttað, hvernig hún er
greind og hvernig henni er stýrt
Kerfi og verkferlar: Stoðkerfi sem auðvelda
skilvirka stjórnunarhætti og áhættustýringu
Góðir stjórnunarhættir: Yfirstjórn bankans
Lykilþættir góðra stjórnunarhátta