Peningamál - 01.03.2006, Síða 22
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
1
22
Ramma grein IV-1
Efnahagsleg áhrif af
brotthvarfi varnarliðsins
Hinn 15. mars sl. tilkynntu bandarísk stjórnvöld að þau hefðu ákveð-
ið að fl ytja meginhluta þess herliðs og búnaðar, sem er í herstöðinni
á Miðnesheiði, frá Íslandi núna í haust. Eftir að þotur og þyrlur hafa
verið fl uttar burt verður óverulegur liðsafl i eftir hér á landi. Margt er
þó enn óljóst varðandi þessi mál að því er varðar uppbyggingu varn-
ar- og öryggisviðbúnaðar eftir að bandaríska herliðið fer og skipt-
ingu kostn aðar af þeirri starfsemi bæði í bráð og lengd.
Varnarliðið hefur haft verulegt vægi í atvinnu og gjaldeyr-
isöfl un þjóðarbúsins. Þetta vægi hefur farið minnkandi en er þó enn
nokkurt. Á síðasta ári námu tekjur íslenskra aðila vegna vinnu fyrir
varnarliðið rúmum 8 ma.kr. eða 0,8% af landsframleiðslu. Þar af
voru laun 3,2 ma.kr., greiðslur til verktaka 1,3 ma.kr. og annað nam
3,6 ma.kr. Íslenskir starfsmenn varnarliðsins eru um 850.
Tekjur Íslendinga af varnarliðinu eru bókfærðar sem útfl utn ings-
tekjur í þjóðhagsreikningum. Á árinu 2005 námu þessar tekjur 131
milljón dollara og höfðu aukist um 9% í dollurum talið frá árinu
2001. Aukningin endurspeglar gengislækkun Bandaríkjadals á þess-
um tíma. Í íslenskum krónum voru tekjurnar 30% lægri á árinu 2005
en á árinu 2001. Á árinu 2005 námu tekjur af varnarliðinu 2,3% af
útfl utningstekjum en í upphafi tíunda áratugarins rúmlega 7%.
Herinn greiðir nú fyrir hluta af nauðsynlegum rekstrarkostnaði
Kefl avíkurfl ugvallar. Ef herinn hættir að greiða þennan hluta færist
hann yfi r á íslenska ríkið, þá sem nota fl ugvöllinn eða báða aðila.
Þyrlur hersins hafa nýst við björgunarstörf hér á landi. Búast má við
að nauðsynlegt verði að fjölga þyrlum í fl ugfl ota Landhelgisgæsl-
unnar þegar bandarísku þyrlurnar fara.
Mun óljósara er hvað talið verður nauðsynlegt að gera varð-
andi varnir landsins. Það fer væntanlega eftir því hvernig semst
við bandarísk stjórnvöld. Einnig er líklegt að starfsemi sem íslensk
stjórnvöld muni sjá um verði byggð upp á lengri tíma. Því er óvíst að
mikill kostnaðarauki verði vegna hennar á næstu árum. Hins vegar
er ljóst að varnarviðbúnaður er mjög kostnaðarsamur og algengt að
ríki verji 1-2% af landsframleiðslu til þessa málafl okks.
Lauslega má áætla að áhrif þess að herinn fari allur fyrir 1. októ -
ber 2006 yrðu sem hér segir á heilu ári: i) Útfl utningstekjur minnka
um 8 ma.kr., eða 130 milljónir Bandaríkjadala. ii) Kostnaður íslenskra
aðila vegna starfrækslu Kefl avíkurfl ugvallar hækkar um 1,5-2 ma.kr.
iii) Ríkisútgjöld munu hækka vegna kaupa á björgunarþyrlum og
rekstrar þeirra og iv) Ríkisútgjöld munu hækka vegna uppbyggingar
á íslenskum varn arviðbúnaði.
Samdráttur útfl utningstekna er nokkuð gefi n stærð. Á móti
gæti komið fjárstyrkur frá bandarískum stjórnvöldum. Hugsanlega
yrði sá styrkur hluti af „aðlögunarferli“ og hyrfi á einhverjum árum.
Um ríkisútgjöldin ríkir meiri óvissa, bæði um fjárhæðir og tíma -
setningu þeirra, meðal annars vegna hugsanlegrar þátttöku banda-
rískra stjórnvalda í aðlögunarferlinu. Ólíklegt virðist að um talsverð
uppbygging varnarviðbúnaðar verði á allra næstu árum.
Í þjóðhagsspá bankans er gert ráð fyrir að útfl utningstekjur
dragist saman um 8 ma.kr. frá og með næsta ári vegna brottfarar
hersins. Gert er ráð fyrir að ríkið taki á sig 3 ma.kr. viðbótarkostn-
að vegna rekstrar Kefl avíkurfl ugvallar og þyrlubjörgunarsveita. Þessi
kostnaður fl okkast sem aukning samneyslu. Þá er gert ráð fyrir 1
ma.kr. aukningu í fjárfestingu hins opinbera í ár og á næsta ári, t.d.
vegna kaupa á björg unarþyrlum. Um þessar tölur ríkir vitanlega mikil
óvissa en búast má við því að betri mynd fáist af áhrifum brottfl utn-
ingsins á næstu vikum og misserum.