Peningamál - 01.05.2010, Blaðsíða 47
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
47
V Fjármál hins opinbera
Frá síðustu útgáfu Peningamála hefur þrennt orðið til þess að bæta
horfur í fjármálum hins opinbera. Í fyrsta lagi er útlit fyrir lægri vaxta-
kostnað af Icesave-skuldbindingum en áður hafði verið gert ráð fyrir, í
öðru lagi minnkar sala bankanna til kröfuhafa vaxtakostnað þótt ekk-
ert sé enn fast í hendi, og í þriðja lagi sýna nýjar tölur Hagstofu Íslands
hærri skatttekjur en gert var ráð fyrir og meiri samdrátt samneyslu í
fyrra en bráðabirgðatölur bentu til. Afkomuhorfur eru því betri en
áður var talið, sem léttir á skuldastöðunni og dregur úr þörf fyrir frek-
ari aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum. Aukið aðhald er þó enn nauðsyn-
legt og verða aðgerðir til að ná því fram mótaðar við gerð fjárlaga fyrir
árið 2011. Aðhaldsaðgerðir sem ráðist er í til að ná fram markmiðum
efnahagsáætlunarinnar auka á efnahagssamdráttinn til skamms tíma,
þar sem samdráttur útgjalda dregur úr innlendri eftirspurn á sama
tíma og hærri skattar draga úr ráðstöfunartekjum, en jákvæð frávik
frá markmiðum efnahagsáætlunarinnar um afkomu og skuldahlutfall
verða að hluta nýtt til þess að styðja við efnahagsbatann.
Samneyslan í samræmi við stefnuyfirlýsingar …
Samneyslan dróst saman um 3% að magni til á síðasta ári sem er tölu-
vert meiri samdráttur en Seðlabankinn spáði í síðustu Peningamálum,
þegar gert var ráð fyrir 0,4% samdrætti á árinu. Sú spá tók mið af
bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir fyrstu þrjá fjórðunga ársins. Í
maí 2009 hafði bankinn hins vegar spáð 2,7% samdrætti samneyslu
árið 2009 og tók sú spá mið af stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar.
Þar sem bráðabirgðatölur Hagstofunnar fyrir fyrri tvo fjórðunga ársins
sýndu mun minni samdrátt og jafnvel vöxt voru þær spár sem komu í
kjölfarið lagaðar að þeim upplýsingum. Samdráttur samneyslu eins og
hann birtist í nýjustu gögnum er því í samræmi við þá stefnuyfirlýsingu
sem gefin var út í apríl í fyrra.
… og því er áframhaldandi samdrætti samneyslu spáð
Í ljósi þess að samdráttur samneyslunnar á síðasta ári var í samræmi
við stefnuyfirlýsingar tekur spáin mið af því að áætlanir stjórnvalda
gangi að mestu eftir í ár. Það þýðir að mikill niðurskurður er fram-
undan. Spá um samdrátt samneyslunnar hljóðar nú upp á 3% í ár og
3,5% á því næsta. Gangi spáin eftir hefur samneyslan aldrei fyrr dreg-
ist svo mikið saman og aldrei áður mörg ár í röð. Að magni til verður
samneyslan árið 2011 svipuð og á árinu 2006.
Mikil óvissa um vaxtakostnað
Mikil óvissa er um vaxtakostnað ríkissjóðs í tengslum við Icesave-
skuldbindingarnar. Lögum um ríkisábyrgð á samning þar sem kveðið
var á um fasta 5,5% vexti hefur nú verið hafnað í þjóðaratkvæða-
greiðslu og frekari samningum er enn ólokið. Í fyrri spám Peningamála
um afkomu hins opinbera hefur verið gert ráð fyrir vaxtakostnaði
sem tók mið af ofangreindum vaxtakjörum og að skuldbindingin væri
vaxtaberandi frá byrjun árs 2009 líkt og samningurinn sagði til um.
Komi til þess að fyrstu árin verði vaxtalaus samkvæmt nýjum samn-
ingi, hefði það veruleg áhrif á afkomu hins opinbera á spátímanum.
Mynd V-1
Þróun samneyslu að raun- og nafnvirði
1. ársfj. 1995 - 2. ársfj. 20131
Ma.kr.
1. Grunnspá Seðlabankans 2. ársfj. 2010 - 2. ársfj. 2013.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
0
20
40
60
80
100
120
30
35
40
45
50
55
60
‘13‘11‘09‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95
Ma.kr.
Samneysla að nafnvirði (v. ás)
Samneysla að nafnvirði - árstíðarleiðrétt (v. ás)
Samneysla að raunvirði (h. ás)
Samneysla að raunvirði - árstíðarleiðrétt (h. ás)
Mynd V-2
Þróun opinberrar fjárfestingar að raunvirði
1. ársfj. 1995 - 2. ársfj. 20131
Ma.kr.
1. Grunnspá Seðlabankans 2. ársfj. 2010 - 2. ársfj. 2013.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
0
5
10
15
20
25
‘13‘11‘09‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95
Fjárfesting að raunvirði
Fjárfesting að raunvirði - árstíðarleiðrétt