Peningamál - 01.05.2010, Side 57
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
57
VII Ytri jöfnuður
Viðskiptahallinn á árinu 2009 mældist mun minni en á árinu áður,
var neikvæður um 50 ma.kr. eða 3,3% af vergri landsframleiðslu.
Afgangur var á vöru- og þjónustuviðskiptum en 161 ma.kr. halli var á
jöfnuði þáttatekna. Í þeim tölum eru meðtaldar reiknaðar vaxtatekjur
og áfallin gjöld vegna innlánsstofnana í slitameðferð. Þar sem þessar
tekjur og gjöld endurspegla ekki eiginlegt gjaldeyrisflæði heldur eru að
mestu reiknaðar stærðir sem þurrkast út þegar þrotabúin verða gerð
upp, er eðlilegt að horfa fram hjá þeim við greiningu á ytri jöfnuði. Án
þeirra var viðskiptajöfnuðurinn jákvæður um 3% á árinu 2009.
Jákvæð þróun á vöru- og þjónustujöfnuði …
Vöruskiptajöfnuðurinn var jákvæður allt síðasta ár, að janúarmánuði
undanskildum, mælt á föstu gengi. Árssamdráttur innflutnings náði
hámarki um mitt síðasta ár en heldur hafði dregið úr honum undir lok
ársins. Í desember jókst innflutningur á milli ára á föstu gengi. Í heild
dróst verðmæti innflutnings saman um 38% á árinu 2009, en um
24% að magni til. Útflutningsverðmæti dróst einnig töluvert saman
á árinu 2009 eða um 20%, einkum vegna mikillar lækkunar á álverði
og verði sjávarafurða. Útflutningur jókst hins vegar um rúmlega 6%
að magni til. Á fyrsta fjórðungi þessa árs var afgangur á vöruskiptum
við útlönd sem nam rúmlega 31 ma.kr.
Þjónustuviðskiptin voru jákvæð á árinu 2009 um 33 ma.kr., en
þjónustujöfnuður hefur ekki mælst jákvæður frá árinu 1997. Lítils
háttar halli var á fyrsta ársfjórðungi, en frá þeim tíma hafa þjónustu-
viðskiptin verið jákvæð. Auknar tekjur af samgöngum, ferðaþjónustu
og annarri þjónustu eru meginskýring þessa viðsnúnings.
Horfur eru á áframhaldandi afgangi á vöru- og þjónustuviðskipt-
um á þessu ári. Gert er ráð fyrir töluverðri hækkun útflutningsverðs,
áframhaldandi lágu raungengi og horfur um alþjóðaviðskipti eru
jákvæðar. Greiðslukortatölur hafa sýnt fram á fremur dræma byrjun
ársins í ferðaþjónustu en útlit er fyrir gott vor og sumar, að því gefnu
að eldgosið í Eyjafjallajökli dragi ekki úr tekjum af ferðamönnum. Því
er gert ráð fyrir að útflutningsverðmæti vöru og þjónustu verði meira
en í síðustu spá og að afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði muni
samsvara allt að 10% af vergri landsframleiðslu á öllum spátímanum.
… en þáttatekjuhallinn er enn töluverður
Þrátt fyrir töluverðan afgang á vöru- og þjónustuviðskiptum í fyrra var
mikill halli á þáttatekjujöfnuði. Viðskiptajöfnuður var því neikvæður
um 3,3% af vergri landsframleiðslu á árinu.
Þáttatekjuhallinn, sem nam 161 ma.kr. á árinu 2009, má einkum
rekja til halla á vaxtajöfnuði. Hann var neikvæður um 172 ma.kr., en
á móti kom að ávöxtun hlutafjár var jákvæð á árinu í heild. Í heild
minnkaði þáttatekjuhallinn verulega frá árinu áður, eða um 5 prósent-
ur, og nam 11% af landsframleiðslu. Minnkun þáttatekjuhallans
skýrist einkum af mun minni halla á vaxtajöfnuði, hann fór úr 21%
af landsframleiðslu á árinu 2008 í 11,5% af landsframleiðslu á árinu
2009, en vextir voru mun lægri á árinu 2009 en á árinu 2008.
Mynd VII-1
Undirþættir viðskiptajafnaðar1
1. ársfj. 2001 - 4. ársfj. 2009
Ma.kr.
1. Rekstrarframlög talin með þáttatekjum.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Vöruskiptajöfnuður
Þjónustujöfnuður
Þáttatekjujöfnuður
-140
-120
-100
-80
-60
-40
-20
0
20
40
60
200920082007200620052004200320022001
Mynd VII-2
Vöruskiptajöfnuður
Á föstu gengi, janúar 2005 - mars 2010
Ma.kr.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla
Vöruskiptajöfnuður
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
201020092008200720062005
Mynd VII-3
Hreinar erlendar vaxtatekjur
1. ársfj. 1999 - 4. ársfj. 2009
% af VLF
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Hreinar vaxtagreiðslur, % af VLF (h. ás)
Hreinar vaxtagreiðslur (v. ás)
Ma.kr.
-140
-120
-100
-80
-60
-40
-20
0
-35
-30
-25
-20
-15
-10
-5
0
‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99