Peningamál - 01.05.2010, Síða 59
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
2
59
Áfallnir vextir innlánsstofnana í slitameðferð skekkja myndina af
þróun vaxtajafnaðar
Eins og fram kom hér að ofan má einkum rekja þáttatekjuhallann á
síðasta ári til halla á vaxtajöfnuði. Vegna sérstakra aðstæðna endur-
speglar vaxtajöfnuðurinn hins vegar ekki raunverulegt flæði fjármagns
á tímabilinu. Stór hluti vaxtagjaldanna eru ógreiddir áfallnir vextir inn-
lánsstofnana í slitameðferð. Mikill hluti þessara vaxtagreiðslna verður
væntanlega aldrei greiddur og mun hverfa úr opinberum tölum um
þáttatekjur þegar gjaldþrotaferli þessara stofnana lýkur. Til að fá betri
mynd af raunverulegu greiðsluflæði til og frá landinu á tímabilinu og
skuldbindingum um framtíðargreiðsluflæði er því gagnlegt að horfa á
þáttatekjuhallann án þessara innlánsstofnana, sem kallaður er undir-
liggjandi viðskiptajöfnuður.
Í tveimur undanförnum útgáfum Peningamála hefur undirliggj-
andi viðskiptajöfnuður verið birtur samhliða opinberum viðskiptajöfn-
uði. Við mat á undirliggjandi jöfnuði í þeim útgáfum var þó ekki ein-
ungis litið fram hjá innlánsstofnunum í slitameðferð heldur einnig fram
hjá áföllnum vaxtagjöldum og -tekjum af erlendum lánum fyrirtækja
þar sem ófullkomnar upplýsingar lágu fyrir. Þessi upplýsingagjöf hefur
nú verið bætt og því er ekki lengur þörf á að taka sérstakt tillit til
þessara lána. Þau eru því ekki lengur undanskilin þegar undirliggjandi
viðskiptajöfnuður er metinn. Undirliggjandi viðskiptajöfnuður undan-
skilur því einungis reiknaðar vaxtatekjur og áfallin gjöld vegna innláns-
stofnana í slitameðferð. Þegar að uppgjöri þrotabúana kemur verður
hins vegar væntanlega til hrein skuld við erlenda aðila sem mun hafa
í för með sér hreinar vaxtagreiðslur til útlanda. Óvíst er hvenær að því
kemur, en það gæti gerst undir lok spátímans.1
Viðskiptahalli minnkar umtalsvert á árinu
Jöfnuður vöru- og þjónustuviðskipta var jákvæður um 120 ma.kr. á
árinu 2009 en þáttatekjuhallinn að viðbættum rekstrarframlögum nam
170 ma.kr. Viðskiptajöfnuðurinn var því neikvæður um 50 ma.kr., eða
3,3% af vergri landsframleiðslu, eins og áður hefur verið rakið. Ef leið-
rétt er fyrir ofangreindum þáttum verður viðskiptajöfnuðurinn hins
vegar jákvæður um 45 ma.kr. eða sem nemur 3% af vergri landsfram-
leiðslu.
Horfur eru á verulegum afgangi á vöru- og þjónustujöfnuði á
þessu ári, því að gert er ráð fyrir að innlend eftirspurn haldist veik,
innflutningur aukist hóflega og útflutningsverðmæti aukist töluvert
sökum hærra útflutningsverðs og aukinna tekna af ferðamennsku. Á
móti vegur halli á þáttatekjum. Fyrir árið í heild er gert ráð fyrir að við-
skiptajöfnuður samkvæmt opinberu uppgjöri verði neikvæður um sem
nemur tæplega 12 ma.kr. eða 0,6% af vergri landsframleiðslu, en að
undirliggjandi viðskiptajöfnuður verði jákvæður um rúman 81 ma.kr.
eða 5% af vergri landsframleiðslu. Ógreiddir áfallnir vextir vegna
innlánsstofnana í slitameðferð vega því þungt í opinberum tölum um
viðskiptajöfnuð.
Mynd VII-5
Viðskiptajöfnuður 2000-20121
% af VLF
1. Rekstrarframlög talin með þáttatekjum. Grunnspá Seðlabankans
2010-2012.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Vöru- og þjónustujöfnuður
Undirliggjandi þáttatekjujöfnuður
Undirliggjandi viðskiptajöfnuður
Mældur viðskiptajöfnuður
-25
-20
-15
-10
-5
0
5
10
15
‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00
1. Þess ber einnig að geta að það er mikil óvissa varðandi áhrif eignarhaldsfélaga í slitameð-
ferð á þróun viðskiptajafnaðarins, en ekki hefur verið tekið sérstakt tillit til þess í þessari
spá.