Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 4

Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 4
4 GLÓÐAFEYKIR innar. Fólkið krafðist lýðræðis í stað erlends einveldis og þvi var það í algjöru samræmi, að upp risu lýðræðisleg verzlunarsamtök Islandinga sjálfra í stað þeirrar erlendu verzlunareinokunar, senr þjóðin hafði stunið undan margar aldir. íslendingar fundu það fljótlega, að samvinnufélagsskapurinn gat verið áhrifamikið tæki í lífsbaráttu þeirra og þess var því ekki langt að bíða að samvinnufélögin breiddust út. Þegar kom fram á aldamóta- árið 1900 var búið að stofna í landinu 10 félög, sem öll lifa og dafna enn þann dag í dag. Samvinnufélögunum hefur síðan haldið áfram að fjölga og í dag munu vera starfandi 49 kaupfélög innan vébanda Sambands íslenzkra samvinnufélaga, heildarsamtakanna, sem kaup- félögin stofnuðu 1902. Þróun samvinnuhreyfingarinnar hefur ekki eingöngu orðið hröð og vöxtur hennar mikill vegna þess fjölda kaupfélaga, sem stofnuð hafa verið um landið allt, svo og stofnunar Sambands íslenzkra samvinnu- félaga, heldur hefur vöxtur hennar og viðgangur fyrst og fremst orðið mikill vegna þess mikla fjölda verkefna, sem félagsmennirnir hafa falið samvinnuhreyfingunni að inna af hendi. Ólíkt því, sem víðast gerist erlendis, er hin íslenzka samvinnuhreyfing blönduð hreyfing fram- leiðenda og neytenda og á það fyrirkomulag sér sögulegar rætur í þeirri staðreynd, að hreyfingin var stofnuð af bændum, sem þurftu á hinni fjölbreyttustu þjónustu að halda, og breiddist síðan einnig til neytenda í þéttbýlinu. Það hefur svo enn ýtt undir vöxt samvinnu- hreyfingarinnar, að fólkið í landinu, sérstaklega í dreifbýlinu, hefur fundið í henni tæki til atvinnuuppbyggingar og bvggðajafnvægis og þess vegna eru samvinnufélögin mikilvirkur þátttakandi í öllum megin greinum atvinnulífsins. Ymsum finnst samvinnuhreyfingin vera orðin of stór, að sjálfsögðu fyrst og fremst þeim, sem sjá eftir glötuðum tækifærum til einkagróða, en samvinnufólkið getur vel við unað og litið með stolti til öflugra kaupfélaga víðsvegar um landið og heildarsamtaka þeirra, Sambandsins ásamt samstarfsfyrirtækjum. Eitt hinna fyrstu kaupfélaga í landinu var Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki. Það mun hafa verið hið þriðja í röðinni, stofnað 1889, og minnist því 90 ára afmælis síns um þessar mundir. Eg, sem þessar línur rita, þarf ekki að gera sögu þess skil. Það gera aðrir einmitt um þessar mundir, mér miklu kunnugri. Það er þó ljóst, að Kaupfélag Skagfirðinga er eitt af traustustu forystufélögum íslenzkrar sam- vinnuhreyfingar og ber öll merki þess mikla og göfuga starfs, sem samvinnufólkið hefur unnið í fögrum byggðum Skagafjarðar í 90 ár. Félagið rekur þróttmikla starfsemi á fjölmörgum sviðum. Það er

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.