Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 7
GLÓÐAFEYKIR
7
starfsfólki félagsins sérstakar þakkir, fyrir fórnfús störf í þágu sam-
vinnustarfsins í héraðinu. Störf þessa fólks er ríkasti þátturinn í vel-
gengni félagsins, og sá samtakamáttur er skapast hefur milli starfs-
manna og félagsmanna það afl, sem duga mun félaginu vel á ókomn-
um árum, til farsældar bæði fyrir bæ og hérað.
Ávallt eru að koma fram óskir frá félagsmönnum, að Kaupfélagið
fjölgi atvinnutækifærum í héraðinu, bryddi uppá nýjum starfsgrein-
um eða auki það sem fyrir er.
Það er sama hvert litið er, alls staðar blasa verkefnin við og meðan
svo er, þá þarf Kaupfélag Skagfirðinga engu að kvíða um framtíðina.
Að lokum skal sú ósk fram borin félaginu til handa, á þessum
tímamótum, að það megi ávallt þjóna félagsmönnum sínum og öðrum
héraðsbúum dyggilega, vera í forystu um uppbyggingarstarf í hérað-
inu, og stuðlað þannig að bættu mannlífi í Skagafirði.