Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 65

Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 65
GLOÐAFEYKIR 65 hlíð 1925 og bjó þar til 1934, þá á Kúskerpi til 1938, brá búi, fór að Ulfsstöðum og var þar til heimilis nokkur ár, stundaði þá oft vega- vinnu á sumrum, fór að búa í Borgargerði 1945 og bjó þar síðan meðan heilsa og kraftar leyfðu. Þar undi hann sér vel með þungan nið Norðurár í eyrum. Hann unni þessu dalabýli, hafði ríkan hug á að bæta það og var mikið í mun, að það mætti haldast í byggð eftir sinn dag. Björn var tvíkvæntur. Árið 1924 (eða 25) kvæntist hann Guðrúnu Jónsdóttur bónda í Bakkakoti í Vesturdal, Jónassonar bónda og læknis á Tunguhálsi, Jónssonar, og konu hans Helgu Hjálmarsdóttur bónda í Bakka- koti, Árnasonar, en móðir Helgu og kona Hjálmars var Guðrún, dóttir Stefáns bónda í Flatatungu, Guðmundssonar. Guðrún var áður gift Sveini Sigurðssyni, síðast bónda í Bakkakoti (sjá þátt um hann í Glóðaf. 1971, 12. h. bls. 65), en þau skildu. Fjögur eru börn þeirra Björns: Jónas, bóndi í Meðalheimi á Svalbarðsströnd, kvæntur Auði Einarsdóttur, Jón Hilmar, trésmiður í Hveragerði, kvæntur Borghildi Þorleifsdóttur, Sigurður Þorsteinn, klæðskeri í Reykjavík, kvæntur Sigurlaugu Eðvaldsdóttur og Guðrún Björg, gift Jóhanni Waage, trésmið í Borgarnesi. Síðari kona Björns var þýzkrar ættar og tók sér nafnið Kristín Helena, er hún hlaut ísl. ríkisfang. Börn þeirra eru 4, ógift og eiga enn (1973) heima í Borgargerði: Björn Gústaf Guðrún, Sigríður Hugrún og Heiðar Borgar. Áður hafði Björn eignazt dóttur, utan hjónabands, með Ragnheiði, alsystur Guðrúnar, fyrri konu sinnar. Er það Hulda, húsfr. á Sauðárkróki, gift Lúðvík Hjálmarssyni. Björn í Borgargerði var meðalmaður vexti, hvatlegur í hreyfingum, rjóður í andliti og fullur að vöngum, augnaráðið fjörlegt og lifandi, svipurinn glaðlegur, Hann var vaskur maður og duglegur og lagði sig allan fram um að sjá sér og sínum farboða. Hann var verklaginn og mesti þrifamaður. Björn var allvel greindur en fljóthuga nokkuð á stundum. Eigi verður sagt að hann væri að öllu hamingjumaður í hjúskaparmálum, því að sundur bar með honum, er á leið, og konum hans báðum. En þar dró honum drjúgt að hann var frá fyrsta fari glaður sveinn og gæddur trú á lífið, enda léttur jafnan í máli og gamansamur og hafði yndi af viðræðum við aðra. Mynd birtist í næsta blaði

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.