Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 43
GLÓÐAFEYKIR
43
var afráðið að kaupa helmingi stærra hús, 18x12 álnir, með lofti og
grunnmúr. Er greinilegt, að undirtektir bænda hafa verið góðar, betri
en forráðamenn félagsins höfðu átt von á.
Ákveðið var að samræma verð á vörutegundum, en nokkurs mis-
ræmis virðist hafa gætt, hvað sem olli. Aföllnum kostnaði var jafnað
niður á hvert stykki. 1 fyrstu var uppskipunarkostnaður lagður á
þyngd vöru, en síðar var honum jafnað á hvert stykki vöru.
Næsta mál var að kjósa nefnd til að semja lög félagsins. Fyrir valinu
urðu Erlendur Pálmason, Ólafur Briem, síðar alþingismaður og bóndi
á Alfgeirsvöllum, séra Stefán M. Jónsson á Bergstöðum og síðar á
Auðkúlu, Guðmundur Gíslason á Bollastöðum og Vigfús Guðmunds-
son á Sauðárkróki. Varamenn voru Magnús á Fjalli og Pétur Péturs-
son á Gunnsteinsstöðum.
Umboðskostnaður fulltrúa pöntunarfélagsdeildanna var ákveðinn
1%, þ.e. þóknun til þeirra fyrir störf í þágu félagsins. Að lokum sam-
þykkti fundurinn, að menn revndu að flokka fé sitt sem bezt á mörk-
uðum, „og var fulltrúum falið að gangast kröptuglega fyrir því. . . .“
Lög félagsins.
Laganefndin hélt fund 26. nóvember. Þangað komu Erlendur, Ólafur
og séra Stefán. Erlendur hafði samið frumvarpsdrög, sem hann lagði
fram og nefndin samþykkti lítt breytt. Síðan var afrit sent til allra
deilda. Loks samdi nefndin bráðabirgðaákvæði, þar sem hún tók að
sér stjórn félagsins til næsta aðalfundar, sem haldinn var 22. júní
næsta ár. Þar var frumvarpið lagt fram og samþykkt, með fáeinum
breytingum. Fara þau hér á eftir, en breytingum er sleppt.
Log fyrir vörupöntunarfélag í Húnavatns- og Skagafjarðarsrýslum.
1. gr. Það er tilgangur félagsins að efla hag félagsmanna, með því að gefa þeim færi á
að panta útlendar vörur með sem minnstum kostnaði að auðið er.
2. gr. Félagið skiptist í jafnmargar deildir og hreppar eru margir í félaginu. Skal hver
deild kjósa 2 fulltrúa, sem mæti á fundum félagsins með atkvæðisrétti. Skulu
þeir safna skýrslum um vörupöntun í deildum sínum, og senda þær fram-
kvæmdarstjóra (sbr. 4.gr.), og ábvrgjast borgun á þeim vörum, er deildir þeirra
panta.
3. gr. Stjóm félagsins hafa 3 menn á hendi, sem skifti sjálfir störfum með sér. Skulu
þeir kosnir árlega á almennum fulltrúafundi á Sauðárkrók um það leyti, er
vömskipið kemur þangað. Til að taka þátt i stjóm félagsins í forföllum þeirra
skulu jafnframt kosnir 2 varamenn.
4. gr. Stjómamefnd félagsins útvegar framkvæmdarstjóra. Skal hann semja við
útlendan kaupmann (Slimon í Leith) um pöntun á vömnum og borgun á