Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 30

Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 30
30 GLÓÐAFEYKIR Friðvin G. Þorsteinsson, Sauðárkróki. deild- f arstjóri Sauðárkróksd.: Hvers vegna ert þú samvinnumaður? Svar: Vegna þess, að það er eina félagsmála- hreyfingin sem tryggir það, að allir menn megi njóta jafnréttis ogjafnrœðis án tillits til búsetu, efnahags eða annarrar þjóðfé- lagsaðstöðu. Friðvin G. Þorsteinsson. Sigurjón Sigurbergsson, Hamrahlíð, deildarstjóri. Lýtingsstaðad.: Þessari spurningu veit ég bara ekki hvernig ég á að svara, hef aldrei hugsað út í það mál, veit ekki einu sinni hvort ég er nokkur sam- vinnumaður. En félagsskapur fólks og samvinna í lífsbaráttunni hlýtur að vera æskileg og í mörgum samskiptum manna nauðsynleg. Ég hygg að góð samvinna manna á meðal bæti afkomu fólks á margan hátt. Þá hef ég alltaf verið kaupfélagsmaður eins og flestir bændur, en þetta var þeirra verzl- un, sem mér finnst nú vera að þróast í aðra átt með breyttum siðum og tíma. Mín fyrstu kynni af verzlun voru af kaupfélagi, þ.e.a.s. af K.A.S.K. (Kaup- félag Austur-Skaftfellinga. G. M.). Það mun hafa verið um 1940 sem ég fór fyrst í kaupstaðinn, man ekki eftir annarri verzlun á staðnum þá, og ekki var um banka eða aðra lánastofnun að ræða. En þarna var aðeins einn innanbúðarmaður, sem afgreiddi líka benzín með handdælu; svo var einn utanbúðarmaður, eins og það var kallað, og svo var það gjaldkerinn, sem annaðist líka bókhald og skrifaði reikninga. Sjálfsagt hefur kaupfélagsstjórinn staðið í þessum verkum líka, þótt ég muni ekki eftir honum. Kaupfélagsstjórar komu og fóru, en þessir þrír menn eru mér minnisstæðir og tíu ára viðskipti mín við þá og K.A.S.K. Sigurjin Sigurbergsson.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.