Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 46
46
GLOÐAFEYKIR
múrsbygging, laun smiða og aðstoð við þá. Ennfremur átti félagið
bn'ggju með palli, sérstakan bryggjupall, uppskipunarbát — að vísu
lélegan —, sem Coghill gaf, og auk þess voru fvrirhuguð kaup á vog.
Þetta taldist allt kosta 169.44 krónur. Hlutafé var 2700 kr., og átti
félagið því óráðstaðað hlutafé, sem var 505.81 kr. Að tillögu forseta var
samþykkt að leggja þessa fjárhæð i sérstakan viðlagasjóð. Þangað
skyldu og renna tekjur af leigu fyrir húsið. Voru 500 kr. lagðar til
Hólaskóla á 5% vöxtu. Skólastjórnin gekk í ábyrgð.
Að síðustu samþvkkti fundurinn að leigja Vigfúsi Guðmundssyni
hálft húsið til loka maí 1886 fyrir 30 krónur.
Annað ár.
Næsta ár var félaginu að ýmsu leyti erfiðara en hið fyrra. Coghill
hafði greitt vel fyrir sauðfé, eða 12-18 kr., en orðið fyrir stórtapi á
sölunni ytra. Um sumarið voru gífurlegir hitar á Englandi. Rófna-
akrarnir, sem bændur þar beittu fé sínu á, skrælnuðu í þurrkunum, og
af því leiddi, að miklu fleira fé var fargað en venjulega. Kaupfélag
Þingeyinga reyndi um haustið útflutning á sauðum á eigin ábvrgð.
• Félagið varð fyrir stórkostlegu tapi, svo að við borð lá, að það riði því
að fullu. Hinn enski umboðsmaður þess, Lauritsen, varð gjaldþrota og
taldi til 18.000 króna skuldar hjá félaginu.
Hinn 17. júní héldu þeir Slimon og Coghill fund með bændum
varðandi kaup á sauðum og hrossum og vörupöntun. Treystust þeir þá
ekki til að greiða meira en 13 krónur fyrir vænstu sauði og 45 krónur
fyrir hross. Þetta var lægra verð en bændur höfðu vænzt. Einnig
færðust þeir undan að senda vörur fyrr en í september, aftóku þó ekki
að senda þær með hrossaflutningaskipinu í ágúst. Seinni hluta júní
voru haldnir fundir, svo að menn gætu endurskoðað pöntunarlista
sína. Var ákveðið að draga mjög úr munaðarvörukaupum eins og kaffi
og sykri.
Fulltrúafundur var haldinn á Sauðárkróki 9. ágúst, um svipað leyti
og hrossaflutningaskipið, Camoens, var þar. Þessi fundur var fyrst og
fremst boðaður til þess að safna fé frá fulltrúum í uppskipunarkostnað,
til þess að hægt væri að reikna út vöruverðið. Auk þess var kosinn nýr
afhendingarmaður, Finnur Jónsson gullsmiður, í stað Vigfúsar og
laun hans ákveðin. Þá var hálft húsið leigt Valgard Claessen frá 20.
ágúst til Jónsmessu næsta ár og leigan ákveðin 30 krónur.
Aðalfundur félagsins var haldinn að Víðimýri 4. september. Nýr
uppskipunarstjóri hafði verið ráðinn í stað Vigfúsar Guðmundssonar.
Var það Jón Guðmundsson í Brennigerði. Hann hafði þennan starfa á