Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 39
GLOÐAFEYKIR
39
X örupöntunarfélag Húnvetninga
og Skagfirðinga
— Forveri K.S. —
Um miðja síðustu öld urðu tímamót í íslenzkri verzlunarsögu. Þá
stigu tslendingar fyrstu skrefin í átt til sjálfstæðrar verzlunar; mynd-
uðu samtök innan sveita um að selja einum ákveðnum kaupmanni
allar vörur sínar gegn því, að hann lækkaði verð á kaupvörum bænda.
Oftast var samið við einhvern lausakaupmann eða spekúlant, en svo
voru þeir kallaðir, sem sigldu skipum sínum á milli verzlunarstaða og
áttu skipti við menn um borð. Fastakaupmenn voru hinsvegar þeir,
sem höfðu fasta búsetu á verzlunarstöðunum. Þeir þóttu selja dýrt,
breyttu verði eftir aðstæðum og sumir mismunuðu mönnum eftir
efnahag. Þeir voru því fremur illa ræmdir af almúgafólki. Þessi af-
sláttur, sem kaupmenn veittu, var ekki mikill í hverri kauptíð; mundi
þó draga sig saman ef samtökin héldust. Þannig kveiktu þau hjá
bændum skilning á því, hvers þeir voru megnugir, sneru þeir bökum
saman.
L’m 1860 mynduðu ýmsir bændur í Húnavatnssýslu og Skagafirði
með sér félagsskap, og fengu kaupmenn til að sigla inn á Sauðárkrók
og eiga þar skipti við sig. Ýmislegt olli því, að ekki var þá þegar stofnað
formlegt félag, en óhætt mun að segja, að eftir það hafi margir bændur
í þessum sýslum haft félag um verzlun. Samtökin voru að vísu mis-
jafnlega öflug, en merkið féll þó aldri. Er aðdáunarvert, hve menn
voru ótrauðir í þessari baráttu, og iétu hvorki óhöpp né mistök sakir
vanþekkingar knýja sig til uppgjafar. Þv-ert á móti voru nýjar leiðir
revndar; dýrmætrar reynslu aflað, sem að lokum leiddi að einu marki:
stofnun kaupfélaga. Þau urðu ekki til fyrir einhverja hendingu, heldur
byggð á traustum grunni, sem tók þrjátíu ár að leggja.
Kunnast þessara félaga er Félagsverzlunin við Húnaflóa, sem
reyndar náði frá Skagafirði og suður í Borgarfjörð, þegar félagið var
stærst. Það var stofnað 1869. Því var síðar skipt um Gljúfurá, á
mörkum Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu. Hét austurhlutinn