Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 21
GLOÐAFEYKIR
21
Tuttugu og fimm ára starfsafmæli
Glóðafeykir kom ekki út á árinu 1978. Því verður hér getið þeirra
tveggja starfsmanna K.S., er á því ári áttu 25 ára afmæli sem fast-
ráðnir starfsmenn félagsins.
Magnús Sigurðsson er fæddur á Ytri-Hofdölum 6. okt. 1916, sonur
Sigurðar frá Syðri-Hofdölum Jósafatssonar og konu hans Þórönnu
Magnúsdóttur bónda á Ytri-Hofdölum. Stundaði nám í Iðnskóla
Siglufjarðar og síðan í Iðnskóla Sauðár-
króks. Lauk námi í húsasmíði og hlaut
meistararéttindi í þeirri iðn. Hóf störf hjá
K.S. 1949. Réðst fastur starfsmaður á tré-
smíðaverkstæði félagsins 1953 og hefur
unnið þar óslitið síðan; verkstjóri í tvo
áratugi.
Magnús er kvæntur Unni Guðmunds-
dóttur. Eiga þau eina dóttur barna.
Magnús Sigurðsson.
Jóhann Olafsson er fæddur á Siglufirði 19. ágúst 1916, sonur hjón-
anna Ólafs Ásgrímssonar og Guðbjargar Ingimundardóttur. Missti
ungur foreldra sína. Ólst upp á Siglufirði hjá afa sínum og ömmu,
Ásgrími Þorsteinssyni og Guðrúnu Páls-
dóttur. Vann 13 ár hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins á Siglufirði, fékkst einnig við
lögreglustörf. Fluttist til Sauðárkróks
1949. Réðst fastur starfsmaður K.S. 1.
nóv. 1953 og hefur unnið hjá félaginu
óslitið síðan, lengstum við afgreiðslustörf
— í fiskbúð 11 ár en annars í
vörugeymslu.
Jóhann er kvæntur Álfheiði Ástvalds-
dóttur. Þau eiga einn son, Ólaf, deildar-
stjóra hjá K.S. Stjúpsonur Jóhanns er
Ástvaldur Guðmundsson, útvarpsvirki.
Jóhann Ólafsson.