Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 48
48
GLÓÐAFEYKIR
innar til þess að vekja félagið til lífsins, virðast menn hafa verið orðnir
því fráhverfir. Verður nánar komið að því síðar.
Hér á eftir fer yfirlit vfir innflutt vörumagn þriggja ára. Engir
reikningar munu til yfir fyrsta árið, en nokkuð hefur verið sagt frá
pöntun þess árs. Þá var pantað fyrir 20.000 kr. í Skagafirði keypti
Coghill nálega 1000 fjár, og gaf 14-20 krónur fyrir kindina.
Félagsdeildir 1885 verðhæð st. tal 1886 verðhæð st. tal 1887 verðhæð st. tal
1 Svínavatnshr. 4898.70 344 3762.38 302 5266.34 375
2 Sveinsst.hr. 2000.00 120
3 Torfalækjarhr. 2553.22 191 1995.98 152
4 Bólstaðarhl.hr. 9032.48 666 6703.12 545 6809.40 526’
5 Engihlíðarhr. 2176.50 177 1962.60 165
6 Vindhælishr. 2016.15 153 2000.00 115
7 Hofshreppur 3234.00 154 4355.93 323 3428.97 287
8 Hólahreppur 5126.55 383 4503.30 364 2001.67 158
9 Viðvíkurhr. 3109.84 292
10 Akrahreppur 4654.73 333 3542.33 280 3139.80 275
11 Lýtingsst.hr. 5940.83 446 6094.32 492 5264.10 502
12 Seyluhr. 4311.15 311 3972.15 323 3776.40 335
13 Staðarhr. 2091.36 228 1526.43 119 2002.25 147
14 Sauðárhr. 4792.42 325 3045.64 237 3000.00 378
15 Skefilsst.hr. 3066.57 236 1738.27 137 715.10 58
16 Rípurhr. 2750.10 206 1976.85 164
Samtals 53.728.41 4000 45.199.47 3606 44.509.85 3720
Eins og þessir reikningar bera með sér, er pöntun árlega mismikil í
ýmsum hreppum. Bólhlíðingar voru beztu stuðningsmenn félagsins
alla tíð, þótt þeir að vísu — einir húnvetnskra deilda — gengju strax í
Kaupfélag Skagfirðinga. Lýtingar verzluðu þar mikið, og verzlun
Svínvetninga fór vaxandi. Verzlun hreppanna innbyrðis var líka
misjafnlega mikil og fór yfirleitt heldur minnkandi. Arið 1886 og 1887
er hún þó svipuð.
Meðalverð er líka töluvert misjafnt í hreppunum. Má af saman-
burði sjá, að sumar deildir panta töluvert dýrari vörur en aðrar. Slíkur
samanburður er þó alltaf ónákvæmur, þegar ekki er vitað urn magn
einstakra vörutegunda, og því verður honum alveg sleppt hér.
Þær vörur, sem menn pöntuðu einkum hjá Coghill, voru matvara.
* Þetta ár eru Bólhlíðingar og Langdælir saman um pöntun, en hinir fyrrnefndu eiga vafalaust
meginhlutann.