Glóðafeykir - 01.04.1979, Blaðsíða 9

Glóðafeykir - 01.04.1979, Blaðsíða 9
GLOÐAFEYKIR 9 — Samvinnuhreyfingin, og þá á ég við kaupfélögin og Sambandið, eiga að mínum dómi fyrst og fremst að láta til sín taka þau verkefni sem lúta að viðskiptum, vinnslu afurða og hverskonar þjónustu við félagsmenn og almenning. Þessi verkefni verða sífellt fjölþættari vegna þess að nútímalífi fylgja önnur og meiri umsvif á ýmsan hátt en áður tíðkuðust og því verða kaupfélögin og Sambandið að færa út sín verksvið í þágu almennings ef þau vilja vera upphaflegum tilgangi sínum trú — og það hefur samvinnuhreyfingin leitast við að vera. Þessvegna hafa nýjar starfsgreinar komið til og munu koma til í þeim mæli, sem félagsmenn vilja. Andstæðingar samvinnuhreyfingarinnar tala um óeðlilega út- þenslu og annað þessháttar og vilja ekki skilja, að með fjölbreyttara mannlífi verður að koma fjölbreyttari og fjölþættari starfsemi sam- vinnuhreyfingarinnar. Gott dæmi um nýja grein og þessa eðlilegu þróun er ferðaþjónusta samvinnumanna, sem góðu heilli er í samstarfi við verkalýðshreyfinguna og vonandi vísir að margskonar samstarfi þessara tveggja þýðingarmestu samtaka almennings í landinu, sam- vinnuhrevfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar. — A síðari árum hefur það færst í vöxt að iðnaðarmenn hafi stofnað framleiðslusamvinnufélög. Hvað segir þú um þá þróun? — Mér finnst hún ákaflega ánægjuleg og ég gleðst yfir því, að framleiðslusamvinna í iðnaði er nú að komast í framkvæmd í tals- verðum mæli. Kveður mest að þessu í rafiðnaði en menn eru einnig komnir af stað í öðrum greinum. Samvinnuútgerð hefur ekki þróast svo að orð sé á gerandi, en mér finnst æskilegt að menn notfæri sér úrræði samvinnunnar við útgerð fiskiskipa. Samvinna um framleiðslu er leiðin að sannvirði vinnunnar og yrði hún verulegur þáttur í iðnaði og framleiðslulífi landsmanna mundi reynsla hennar og útkoma hjálpa til að tryggja sanngjarna lausn kjaramála — að sínu leyti eins og verslunarrekstur kaupfélag- anna og þjónusta þeirra og annarra samvinnufélaga við vinnslu og sölu afurða hefur stuðlað mjög að bættum verslunarkjörum, lægri álagningu en ella mundi og einnig að lægri milliliðakostnaði. Hvergi í sambærilegum löndum mun lægri verslunarálagning en á íslandi, aðallega vægna áhrifa samvinnufélaganna og hvergi fá framleiðendur hlutfallslega jafn mikið af afurðaverði heim eins og hér á landi í þeim greinum, sem samvinnufélögin annast. Þótt mikið sé talað um háan kostnað við vinnslu afurða þá er þetta nú svona. — Nú eru þeir til, sem telja, að flest félagsleg viðfangsefni megi ekki aðeins leysa eftir leiðum samvinnunnar heldur og að þau verði ekki á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.