Glóðafeykir - 01.04.1979, Blaðsíða 14

Glóðafeykir - 01.04.1979, Blaðsíða 14
14 GLOÐAFEYKIR mennsku Jón Jakobsson bóndi á Víðimýri, síðar landsbókavrörður, og lét hann vöxt og viðgang kaupfélagsins mjög til sín taka. Fyrstu árin átti félagið erfitt uppdráttar, eigi hvrað sízt sökum harðrar og oft óvægilegrar samkeppni af hálfu kaupmanna, sem þá voru á Sauðárkróki. Félagið var lengi framan af pöntunarfélag. Arið 1906 var sett á stofn söludeild. og seldi félagið þar vörur við mun lægra verði en aðrar verzlanir á staðnum. Söludeildin átti við erfiðleika að etja, og voru þá tekin upp pöntunarviðskipti. Síðar efldist brátt aftur verzlun, sem síðan blóm- gaðist jafnt og þétt, þótt oft væri við ramman reip að draga, bæði af ástæð- um innan frá og þó einkum af ytri at- vikum. Styrkur félagsins hefir legið mjög í því, hve þorri félagsmanna hefir Jóhann Salberg Guðmmdsson. staðið vel að félaginu, hvað sem annars hefir á gengið, og sýnt þar með félags- þroska sinn. Eigi má gleyma að geta þess, að félagið hefir átt dugandi forystumönnum á að skipa, sem hafa staðið vörð um félagið og beint því á réttar brautir til hags og heilla fyrir félagsmenn. — Eigi er það ætlan mín að rekja hér sögu kaupfélagsins, þó að drepið hafi verið á fáein atriði úr sögu þess til skýringar. En þegar nú á 90 ára afmæli kaupfélagsins er litið á stöðu þess, eins og hún nú er, blasir við blómlegt fyrirtæki, sem hefir margháttaða starfsemi og rekstur með höndum og er nú langstærsta fyrirtæki í Skagafirði, með fjölda manna í þjónustu sinni. Félagið rekur deildar- skipta verzlun á Sauðárkróki í 6 búðum. Það rekur þar véla- og bifreiðaverkstæði, trésmiðju, ntjólkursamlag og sláturhús í rúmgóðum og nýtízkulegum húsakynnum. Enn fremur rekur félagið hraðfrysti- hús, sem er stærsti fiskkaupandi og hefir mesta afkastagetu frystihúsa í héraðinu, og fara nú fram endurbætur og stækkun á húsinu og fiski- mjölsverksmiðju, sem rekin er í tengslum við það. Þá skal þess getið, að félagið rekur umfangsmikla verzlun í útibúum i Varmahlíð og Hofsósi, og á síðasta ári var sett á stofn verzlun í nýjum húsakynnum á Ketilási í Fljótum. Þessi upptalning talar sínu máli og bendir ótvírætt til þess, að mikil og öflug þróun hefir átt sér stað hjá félaginu. Sú þróun stendur ekki í stað, hún heldur áfram. Meðal næstu verkefna kaupfé-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.