Glóðafeykir - 01.04.1979, Page 15

Glóðafeykir - 01.04.1979, Page 15
GLOÐAFEYKIR 15 lagsins má nefna nýtt og stórt verzlunarhús, sem jafnframt á að vera húsnæði fyrir skrifstofur og aðalstöðvar félagsins. Teikning hefir verið gerð af húsinu og grunnur þegar grafinn, og eru framkvæmdir á honum á næsta leiti. Rekstur félagsins hefir farið jafnt og þétt vaxandi, og er óþarft að nefna hér tölur því til staðfestingar, og enn vex rekstur þess og mun fara vaxandi. Starfssvið félagsins hefir einnig stækkað, og tekur það nú yfir öll sveitarfélög í Skagafirði, hreppa sýslunnar og Sauðárkróks- kaupstað, enda hefir tala félagsmanna vaxið í samræmi við þetta hin síðari ár, og er raunar eðlilegt og líklegt, að hún muni aukast verulega næstu árin. Þróunin stendur eigi í stað. Svo sem á er drepið hér að framan, hefir Kaupfélag Skagfirðinga oft átt andstöðu að mæta og reyndar átt við aðra erfiðleika að etja, einkum fyrstu árin, og hefir því þurft að heyja nauðsynlega baráttu, svo sem skiljanlegt er. Hefir þá einkum reynt á forystumenn félagsins, en þeir hafa einatt reynzt dugandi og þess umkomnir að bægja frá hættum, halda uppi rétti félagsins og opna leiðir. Margir þeir menn eru nú gengnir, og hafa fáeinir þeirra verið nefndir hér að framan. En öllum þeim baráttumönnum, lífs og liðnum, þakkar félagið nú mik- ilsvert og óeigingjarnt starf fyrir heill og heiður félags síns. Það er almennt viðurkennt, að félagið hefir fyrr og síðar verið lánsamt með að hafa góða starfsmenn, og stendur það í mikilli þakkarskuld við þá. Ég hefi kosið að sleppa að telja upp nöfn í þessari stuttu ritsmíð, þar sem slík upptalning yrði of rúmfrek. Það er ánægjulegt að minnast þess nú, að Kaupfélag Skagfirðinga er gott og öflugt fyrirtæki, sem nýtur almenns trausts og virðingar. I lok þessa máls vil ég flytja Kaupfélagi Skagfirðinga á 90 ára afmæli þess beztu óskir mínar um góða framtíð. Megi starfsemi þess ganga sem bezt til velfarnaðar og heilla fyrir félagsmenn og raunar fyrir héraðið allt og íbúa þess. Megi starfsemi félagsins einkennast af heiðarleik og drengskap, og kappkostað verði að vinna sem bezt og ötulast að markmiðum félagsins með heiðri og sæmd. Jóhann Salberg Guðmundsson.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.