Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 20

Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 20
20 GLOÐAFEYKIR Gísli Magnússon, Eyhildarholti. rit, og mikið spurt um það, hvaðanæfa að af landinu. Gísli er sérstakur málvöndunarmaður, og svo snjall að fara með penna, að einstakt er. Þegar óvægilega hefur verið að kaupfélaginu vegið, þá hefur það yfirleitt verið Gísli sem gengið hefur fram fyrir skjöldu og svarað slíkum árásum af einbeitni og rökfestu, og slíkri snilld, að eftir hefur verið tekið. Má því með sanni segja, að hann hafi verið félaginu „Sverð þess og skjöldur“ nú um langa hríð. Enn sér Gísli um ritstjórn Glóðafeykis, og væntum við þess að fá notið kunnáttu hans og starfskrafta sem lengst í þágu samvinnuhreyfingarinnar. Eg vil að lokum færa Gísla sérstakar þakkir fyrir vinsemd, ánægju- legt samstarf og góð kynni frá því að ég kom fyrst til starfa fyrir Kaupfélag Skagfirðinga. H. R. T.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.