Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 23

Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 23
GLOÐAFEYKIR 23 Fulltrúar á aðalfundi ásamt með stjóm og kaupfélagsstjóra á 50 ára afmælinu. Á hátíðasvæðinu var Skagfirðingabúð reist, en vestan við hana var tjaldaður veitingaskáli einn mikill og smekklegur, gátu þar setið á annað hundrað manns í einu undir borðum. Milli skálans og búðar- innar var svo skýlt að norðan svo þarna myndaðist stórt svæði. Var þar reistur ræðustóllinn og bekkir margir og fóru þar fram öll ræðuhöld. Fánar blöktu hvarvetna við hún, en á miðjum vellinum gnæfði hinn regnbogaliti fáni samvinnumanna á gríðarhárri stöng og tók sig þar mætavel út og setti hátíðasvip á staðinn. Samkoman hófst með því að form. K.S., Tobías Sigurjónsson, setti mótið og bauð alla fulltrúa og gesti velkomna á þetta einstæða afmæli. Að því loknu hófst guðsþjónusta og framdi sr. Lárus á Miklabæ hana. Að henni lokinni flutti framkvæmdastjóri, Sigurður Þórðarson, snjalla ræðu. Rakti hann þar sögu K.S. frá bvrjun og yfir öll þessi 50 ár. Var erindi það hið fróðlegasta. Þá lýsti form. K.S. því yfir, að stjórnin og aðalf. hefði kosið Albert Kristjánsson, bónda á Páfastöðum, sem heiðursfjelaga sinn. Var hann einn elsti samvinnumaður fjelagsins og hafði verið í mörgum trúnað- arstörfum þess. Er vert að geta þess, í sambandi við þetta, að er K.E.A. hjelt uppá sitt 50 ára afmæli, þá kaus stjórn þess fyrir heiðursfélaga

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.