Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 27

Glóðafeykir - 01.04.1979, Síða 27
GLÓÐAFEYKIR 27 byggðarlagi. Þar er auk þess eitt elzta samvinnufélag útgerðarmanna, og voru þessi félög arftakar tveggja kaupmanna, sem deildu og drottnuð í byggðarlaginu. Hér var að vísu um merka athafnamenn að ræða, sem á ýmsan hátt voru brautryðjendur í verzlunar- og at- vinnumálum, en réðu jafnframt einir lögum og lofum. Eg hygg að engum blandist hugur um breytinguna til bóta við tilkomu samvinnufélaganna og að nú njóti íbúarnir ríkulega ávaxt- anna af samstarfinu öllum til hags og heilla. Ymsar sögur heyrði ég í ungdæmi mínu um óbilgjarna kaupmenn gagnvart fátækum bændum, sem brenndu sig inn í vitund mína. Fjarri sé mér að alhæfa slíkar sagnir og«kylt að viðurkenna, að í þeim hópi hefur margur unnið vel að bættum verzlunarháttum og reynzt viðskiptamönnum drengilega. Við lestur þjóðarsögunnar á barnsaldri rann mér sem fleirum til rifja áþján landsmanna í sambandi við verzlunina, þar sem ekki aðeins var glímt við óhagstætt verðlag og brottflutning fjármuna, heldur og við sífellda auðmýkingu gagnvart drottnurunum. •9 „Þar sem fyrr hjá búðarborði barnamaður stóð, og dauðableikur brauðskuld ranga leysti, brauðpeninginn síðsta í höndum kreisti“. (E. Ben.). Skal sú raunasaga ekki rakin frekar. Með stofnun kaupfélaganna um og fyrir aldamótin verða mikil þáttaskil í verzlunarsögunni. Er sú barátta mikil hetjusaga, sem við hljótum að dást að. I nær heila öld hafa félögin sannað gildi sitt á margvíslegan hátt. Svo að stiklað sé á stóru skal þetta nefnt: FLaupfélögin upprættu þá verzlunarháttu að greiða mismunandi verð fyrir vöruna eftir því hvort fátækir smábændur áttu í hlut eða stórbændur. Þau seldu vöruna á sannvirði og stuðluðu mjög að vöru- vöndun. Eftir að félögunum óx fiskur um hrygg, höfðu þau forgöngu um byggingu sláturhúsa, síðar um stofnun mjólkursamlaga og skipu- lagningu afurðasölunnar. I kjölfarið fylgdi uppbygging ullar- og skinnaiðnaðar, kjötiðnaðar og vélaverkstæða. Skipastóll félaganna siglir nú um flest heimsins höf. Þá hefur vinnsla sjávarafla verið stór þáttur á vegum nokkurra félaga. Fjölmarga aðra atvinnuþætti hafa kaupfélögin stutt á starfssvæðum sínum, og reynt hefur Ýerið að dreifa verzluninni eftir megni. Stutt hefur verið að ýmsum menningarmálum.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.