Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 44

Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 44
44 GLÓÐAFEYKIR þeim, þannig að hann flytji vörurnar hingað á sumrin, og láni upp á fé, er hann kaupi að haustinu á mörkuðum i Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, er framkvæmdarstjórinn ákveður og auglýsir hlutaðeigendum. Skal hann í þeim framkvæmdum sérstaklega hafa fvrir augum, að félagsmenn fái vörurnar með sem minnstum kostnaði, og sjá um, að kaupmaðurinn sendi vörurnar með sérstöku merki hverrar deildar og sérstökum reikningum yfir vörur þær, er hver deild á. Framkvæmdarstjórinn skal og taka á móti pöntunarskýrslum frá fulltrúum deildanna (sbr. 2.gr.), og senda þær í tækan tíma kaupmanninum, sem hann hefur samið við. 5. gr. Framkvæmdarstjóri skal og semja svo um, að vörurnar séu ætíð fluttar til Sauðárkróks á tímabilinu frá 15. júní til 4. júlí. 6. gr. Félagið skal eiga hús á Sauðárkrók til þess að gevma vörurnar í, þangað til viðtakendur vitja þeirra. Húsinu skulu fylgja hæfileg áhöld til afhendingar á vörunum. 7. gr. Til þess að koma upp húsinu, skulu félagsmenn leggja til fé, sem skiptist í hluti. Hver hlutur skal vera 25 krónur að upphæð. 8. gr. Hver deild, sem gengur í félagið, skal borga til hússins að minnsta kosti 8 hluti (200 kr.). Annars getur sú deild eigi notið félagsréttinda. 9. gr. Fulltrúar skuiu safna hlutaloforðum og innheimta hluti hver i sinni deild, og senda þá svo til félagsstjórnarinnar fvrir þann tíma, er hún ákveður. 10. gr. Félagsstjórnin gefur út hlutabréfin og afhendir þau eigendunum, er þeir hafa borgað hlutina til hennar. Skrá vfir hluthafendur skal rituð í gjörðabók félagsins. 11. gr. Félagsstjórnin sér að öllu leyti um að koma húsinu upp, og útvega tilheyrandi áhöld fyrir það fé, sem safnast hefur, ef það er nægilegt. 12. gr. Félagsstjórnin annast uppskipun á vörunum, og ef viðtakendurnir taka eigi þá þegar móti vörunum, skal hún útvega mann, sem sér um geymslu og afhend- ingu á þeim, er þeirra verður vitjað. Kostnaður sá, er gengur til launa afhend- ingarmanni fyrstu 10 dagana eftir að vöruskipið er komið á Sauðárkrók, leggst á pöntunarfélagið í heild sinni, en eftir þann tíma leggst kostnaðurinn við afhendingu varann'a á eigendur þeirra. 13. gr. Hluthafendur skulu fá 5% í rentu um árið af hlutaupphæð sinni. Þessum rentum og öðrum gjöldum félagsins, svo sem fé til viðhalds húsinu og áhöldum þess, kostnaði við uppskipun og afhending á vörunum og hæfileg þóknun til félagsstjórnarinnar fyrir fyrirhöfn hennar eftir sanngjörnum reikningi, er al- mennur fulltrúafundur síðan samþvkki, skal félagsstjórnin jafna niður á þá, sem panta vörurnar, uppskipunarkostnaðinum eftir þunga, en öðrum kostnaði eftir hundraðsgjaldi af vöruverðinu, eftir því sem almennur fulltrúafundur ákveður. Allur þessi kostnaður skal borgast til kaupmannsins, sem selur vör- una, um leið og vörurnar eru borgaðar að haustinu, en hann skal aftur borga þessa upphæð til félagsstjórnarinnar. En þá skal félagsstjórnin nægan tima á undan hafa auglýst fulltrúum reikning yfir allan þennan kostnað, og hve mikil upphæð komi af honum á hverja deild. 14. gr. Ar hvert skal félagsstjórinn halda almennan fulltrúafund á Sauðárkrók. Þar má ræða um öll mál, sem eru þarfleg fyrir félagið. Auk þess má hún kveðja til aukafunda, er henni þvkir nauðsyn bera til. Á fundum skal ráða afl atkvæða. Félagsstjórnin skal halda gjörðabók og gjaldabók á kostnað félagsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.