Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 47

Glóðafeykir - 01.04.1979, Qupperneq 47
GLÓÐAFEYKIR 47 hendi lengi síðan, einnig fyrir Kaupfélag Skagfirðinga eftir stofnun þess. Vigfús hafði verið ráðinn gegn því að fá 20 aura fyrir hvert stykki, er kæmi á land. Þetta þótti nokkuð dýrt, og var Jón ráðinn gegn ákveðinni þóknun, 45 kr., en laun verkamanna, leiga á bát og bryggju var greidd af félaginu. Varð kostnaðurinn ekki nema 337.33 kr. í stað 800 kr. árið áður. Kostnaður á stykki var aðeins 9'/6 eyrir. Stjórn félagsins var endurkosin að öðru leyti en því, að Sveinn Sölvason í Skarði kom í staðinn fyrir Vigfús og Jón Jónsson á Haf- steinsstöðum í stað Magnúsar á Fjalli. Þriðja ár. Árið 1887 var svipað hinu fyrra. Hafís teppti siglingar fyrir Norð- urlandi lengi sumars. Camoens komst loks 19. ágúst inn á Sauðárkrók. Þremur dögum seinna hefur vörunum verið skipað á land og inn í hús. Erlendur samdi þá að nýju við Finn um afhendingu þeirra og varð- veizlu hússins og áhalda félagsins til 1. júlí næsta ár. Aðalfundurinn var haldinn 5. september. Vantaði fulltrúa úr sex hreppum, sem þá töldust í félaginu, þó að Rípurhreppur hefði enga pöntun gert þetta ár. Þar voru lagðir fram reikningar deildanna og kostnaði jafnað niður. Verzlun var svipuð og árið áður. I lok fundarins bar forseti upp þá spurningu, „hvort menn vildu halda áfram pönt- uninni í líkri stefnu eins og undanfarin ár, en fulltrúar deildanna lýstu yfir því, að þeim þætti við eiga, að halda fund með sveitungum sínum áður en nokkuð væri afráðið um það.“ Óánægja með verzlunina við Coghill var nú orðin slík, að menn treystust ekki til að láta uppi, hvort þeir vildu halda félagsskapnum áfram, nema ráðgast um það heima í deildunum. Önnur ástæða var, að á fundinum var lesið upp bréf frá Jóni Vídalín, sem orðinn var umboðsmaður fyrir Louis Zöllner í Newcastle. Þar bauð hann að senda félaginu vörur snemma vors, í apríl eða jafnvel marz, móti borgun í hrossum um sumarið. Þetta var freistandi tilboð; það munaði talsverðu á því og að fá vörur ekki fyrr en í ágúst. Zöllner var þá orðinn umboðsmaður fjögurra kaupfélaga, og gengu viðskiptin vel. Var afráðið, að fulltrúar tilkynntu sveitungum sínum þetta boð. Varðandi áframhald á pöntun lofuðu fulltrúarnir að láta stjórnina vita fyrir lok nóvember, hvort þeir ætluðu að vera með eða ekki. Stjórnina skipuðu nú þeir Erlendur Pálmason, Ólafur Briem og Pétur á Gunnsteinsstöðum, en varamenn voru séra Einar Jónsson á Mikla- bæ, síðast prestur á Hofi í Vopnafirði, og Jón á Hafsteinsstöðum. Þetta er síðasta reikningsár félagsins. Þrátt fyrir tilraunir stjórnar-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.