Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 55

Glóðafeykir - 01.04.1979, Side 55
GLÓÐAFEYKIR 55 Þegar pöntunin kom Hinn 23. apríl 1889 telst vera stofndagur Kaupfélags Skagfirðinga. Þá „var fundur haldinn á Sauðárkróki af ýmsum deildarstjórum hins gamla pöntunarfélags Húnvetninga og Skagfirðinga, eptir fundarboði frá Ólafi Briem, sem kosinn var fundarstjóri“. Svo segir í „Þáttum úr þróunarsögu“, er undirritaður tók saman og voru prentaðir í 5 fyrstu heftum 16. árg. mánaðarritsins Heima er bezt 1966. Er í þáttum þessum rakin að nokkru forsaga Kaupfél. Skagf. Félagið var fyrstu árin hreint pöntunarfélag, og verzlunarhættir svo og aðdrættir allir næsta ólíkir því, er nú gerist. Síðasti kaflinn, sem hefur að yfirskrift „Þegar pöntunin kom“, og styðst við eigin minningar og annarra, sýnir gerla muninn, sem nú er á orðinn, þegar sveitamenn láta sig varla muna um að „skreppa í Krókinn“ á bílnum sínum, ef þá vanhagar um kíló af kaffi eða sykri. Þykir rétt eftir atvikum, að endurprenta þennan kafla nú í afmælishefti Glóðafeykis. Hefst nú þátturinn. Samið var að þessu sinni (1890) við Halldór veitingamann um afhendingu og gevmslu vara og samþvkkt, að „greiddir væru 10 aurar fvrir hvert stykki, sem afhendingarmaðurinn tæki í geymslu og ábvrgð, og skvldi honum verða borgaðir þeir um leið og hann afhenti stvkkið. Abyrgð skyldi hann taka á hinu geymda.“ Hér kom þegar í öndverðu fram, hversu bagalegur félaginu mundi reynast skortur á geymslurúmi, meðan það gæti ekki eignazt hús. Því að enda þótt félagið kæmist að þessu sinni að viðunandi samningum um gevmslu á vörum og hefði auk þess annað veifið leiguafnot af hálfu hlutafélagshúsinu og stundum öllu, þá hrökk það aðeins til geymslu á nokkrum — og oftast litlum — hluta þeirrar vöru, er félagið fékk. Meginhluta hinnar pöntuðu vöru urðu félagsmenn að sækja þegar í stað. En þá var enginn sími kominn. Því var það, að jafnskjótt og pöntunarskipið kom, varð að gera út sendimenn um allar jarðir til að láta vita um komu þess —: Ut í Sléttuhlíð að austan, út á Skaga að vestan, fram í Skagafjarðardali, vestur yfir Vatnsskarð í Svartárdal, Blöndudal og — seinna — í Langadal og Svínadal. Klárarnir urðu að hafa það — og munu þá stundum hafa volgnað undir hnakk og beizli.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.