Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Blaðsíða 57
Lestur og ritskýring
mála. Sama má segja um þá sem hyggjast verða mælskumenn. Orð hinna
fomu rithöfunda, hugmyndaauðgi þeirra, tær stQl, snjöll efnismeðferð og
glæsileg framseming, í einu orði enginn hinna góðu kosta mælskulistar
þeirra kemur að gagni nema menn æfi sig að skrifa á hveijum degi.
Á öðrum stað segir Þeon:14
Með því að æfa khreiu verða menn ekki aðeins leiknir í að halda ræður
heldur bætir það skapgerð manna, þar eð við æfum okkur á orðræðum
hinna spöku.
Æfingar Þeons þyngjast stig af stigi. Þær eiga að brúa bilið milli
fræðslu skólakennaranna (grammatici) og framhaldsnámsins hjá
mælskukennurunum (rhetorunum).15 Þær hefjast á léttum æfingum, þar
sem stúdentinn á að endursegja kafla, en þyngjast síðan í æfingar sem gera
meiri kröfur til rökfimi og skapandi hugmyndaflugs stúdentsins.16 í
kaflanum um „khreiu“ lýsir Þeon æfingarferlinu.17 Fyrst endursegir
stúdentinn innihald „khreiunnar," síðan umorðar hann hana og breytir um
tölu og föll í textanum. í þriðja lagi talar stúdentinn um það sem hann
fellir sig við í textanum. í fjórða lagi gerir hann athugasemd við það sem
hann er ósáttur við. í fimmta lagi lengir hann textann með innskotum eða
styttir hann. í sjötta lagi gagnrýnir hann ,Jchreiuna“ fyrir að vera: a) óljós;
b) margorð; c) takmörkuð; d) ósennileg; e) óframkvæmanleg; f) röng; g)
skaðleg; h) til einskis nýt; g) ósiðleg.
Af öðrum æfingum hjá Þeoni má nefna „dæmisögu“ (myþos),
„frásögn“ (diegema), „almannaróm“ (koinos topos), „lýsingu" (ekfrasis),
„persónusköpun“ (prosopopoiia), „lofræðu“ (enkomiorí), „samanburð“
(synkrisis), „álitamál“ (þesis) og „lög“ (nomos).
„Dæmisögu“ skilgreinir Þeon sem „upp spunna sögu sem dregur upp
mynd af sannleikanum“.18
„Frásögn“ er skilgreind sem „lýsing á atburðum sem hafa gerst eða
gætu hafa gerst“.19
„Almannarómur“ er „orðræða um efni sem menn eru sammála um,
bæði um lesti og dygðir“.20
f „persónusköpun“ vom stúdentar t.d. æfðir í að semja sannfærandi
14 I, 40-43.
16 Bonner, Education, bls. 52-64; 250.
16 I, 175-198.
17 m, 139-291.
18 IV, 1.
19 V, 1-2.
20 VI. 1-2.
55