Jökull - 01.12.1984, Side 180
virðist. Neðsti hlutinn mun ekki hafa verið á
hreyfingu í sumar svo merkjanlegt væri.
FJALLSJÖKULL
Flosi tekur fram: Jökullinn er sléttari en und-
anfarin ár. Um miðjan júlí sáust allmiklir jakar
inn eftir lónbotni í Breiðamerkurfjalli. Úr lóninu
mun hafa hlaupið án þess að hlaupsins yrði greini-
iega vart í Fjallsá. Meira ber nú á klöpp í jökul-
jaðrinum við Breiðárútfall en í fyrrasumar.
BREIÐAMERKURJÖKULL
Flosi tekur fram: Nú sjást ekki sprungur í jaðri
jökulsins við Breiðamerkurlón, sem gætti nokkuð
í fyrrahaust.
Steinn Þórhallsson tekur fram: Á árinu 1980
mun vatn hafa hætt að safnast í lónið í Veður-
árdal. Áður átti Veðurá það til að þorna alveg, en
nú er alltaf sírennsli í henni. Áin kemur nú undan
jöklinum inn með Fellsfjalli, þar eru klappir und-
ir. Jökuljaðarinn er þykkur og brattur. Veðurá
fellur svo í miklum bratta niður á aurana og
meðfram jöklinum. Hún fellur þar í jaðarslón.
Nokkru vatnsmeiri fellur hún svo í Stemmulón.
Stemmulón teygir sig meir og meir í áttina að
Jökulsárlóni. Haftið á milli lónanna er orðið
mjótt.
HOFFELLSJÖKULL
Þrúðmar gerir mælingunum ítarleg skil og
tekur fram: Hoffellsjökull skríður niður á milli
Gæsaheiðar að vestan og Múla að austan. Þegar
nokkru framar (sunnar) kemur klofnar hann á
Svínafellsöldutanga. Eystri jökulálman heldur
Hoffellsnafninu og er á milli Geitafells að austan
og Svínafells að vestan. Undan jöklinum falla
Austurfljót (Hornafjarðarfljót). Vestari jökul-
álman er á milli Svínafells að austan og Jökulfells
að vestan. Jökullinn er nefndur Svínafellsjökull.
Undan honum falla Suðurfljót, sem síðar samein-
ast Austurfljótum. Síðasta mannsaldurinn hafa
bæði þessi jökulvötn komið úr jaðarslónum og
eru því sæmilega föst í rásinni.
Breytingar á Hoffellsjökli það sem af er öldinni
eru að hann hefur lækkað mjög mikið (þynnst).
Á síðustu 50 árum hefur hann samt aðeins hopað
um 260 metra. Staða Hoffellsjökuls 1930 mun
hafa verið nær sú sama og 1900 og þar eru
fremstu mörk, sem sjáanleg eru eftir Hoffells-
jökul.
Árið 1950 var komið dálítið jaðarslón innan við
útfallið frá Hoffellsjökli. Árið 1970 náði það að
austan inn með Geitafelli inn fyrir Efstagil, og að
vestan álíka langt inn með Öldutanga. Frá
fremstu (syðstu) tá jökulsins náði vatnið nálægt 2
km inn með hvoru megin. Þessi staða er í aðalat-
riðum óbreytt í dag. Eina verulega breytingin er
að jökultungan er alltaf að þynnast. Jaðarslónið
hefur alltaf verið mjótt, lengstaf 30 til 100 m á
breidd, en all breytlegt.
Þessi jökultunga er 2 km á lengd út og suður og
um 1 km á breidd austur/vestur. Hún er umflotin
á þrjá vegu og nær aðeins lítið eitt upp úr vatns-
skorpunni. Hún virðist hálfpartinn á floti, að
minnsta kosti ýtist hún fram öðru hvoru án þess
að um mikinn þrýsting sé að ræða. Engar hrannir
myndast þótt framskrið eigi sér stað. Fremstu
mörk jökultungunnar færast til um nokkra tugi
metra milli ára. Á árunum laust eftir '60 var lónið
einna breiðast, þ.e.a.s. þá var jökuljaðar kominn
Iengst til baka.
í júlí í sumar var jökultotan 50 m frá öldunni,
þ.e.a.s. breidd lónsins, en nú 26. nóv. ‘83 var hún
landföst. Þetta er hin venjulega breyting milli
ára, sitt á hvað. Síðan jökullinn Iækkaði nægilega
flýtur hann fram.
Eins og fyrr segir hefur Hoffellsjökull lækkað
mjög mikið. Það sést meðal annars vel á því hvað
fjallið Nýju-Núpar hefur komið upp úr jökli á
síðustu 40 árum, þar tók að ydda á jökulsker upp
úr aldamótunum síðustu. Einnig er augljóst að
jökullinn hefur lækkað verulega þar sem hann
skríður niður með Múlanum, en hopið er samt
aðeins 260 m síðan um aldamót.
Um Svínafellsjökul gegnir allt öðru máli. Hann
hefur hopað röskan hálfan þriðja kílómetra síðan
1930 og frá aldamótum til 1930 hopaði hann um
nokkur hundruð metra. Gömlu viðmiðunarmerk-
in eru enn þekkt. Svínafellsjökull liefur gróft sagt
hopað 10 sinnum hraðar en Hoffellsjökull. í
þessu sambandi er rétt að veita því athygli, að frá
Svínafelli, sem í daglegu tali er nefnt „Svína-
fellsgöltur" liggur allhár klapparháls, sem nefnd-
ur er Öldutangi, í átt að Gæsaheiði vestan Hof-
fellsjökuls. Þessi klapparás virðist draga úr skriði
jökulsins vestur á leysingasvæði Svínafellsjökuls,
þarna er einskonar vítt og mikið yfirfall við háa
jökulstöðu. En annað er uppi á teningnum þegar
jöklar lækka, má vera að þarna sé skýringin á því
hvað Svínafellsjökull hopar hratt síðan jöklar
tóku að lækka.
Hér að framan eru skýringar og athugasemdir
Þrúðmars Sigurðssonar. Rétt er að veita því at-
hygli að allt, sem skrifað hefur verið í Jökul um
178 JÖKULL 34. ÁR