Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 5 Þetta tölublað er mikið afrek fræðimanna, yfirlesara og annarra er koma að útgáfu tímaritsins. Það sýnir hvað hægt er að gera á stuttum tíma en samt gera vel. Það sýnir einnig gríðarlegan kraft og grósku í hjúkrunarvísindum á Íslandi. Þegar hugmyndin að þessu blaði fæddist í mars­apríl sl. vöknuðu margar spurningar. Tíminn var naumur – myndu hjúkrunarfræðingar ná að skrifa grein á nokkrum mánuðum? Spurt var hvort rétt væri að búa til nýtt ritrýnaferli við hliðina á því venjulega – hvað myndu þeir höfundar segja sem hafa sent inn handrit á venjubundinn hátt og bíða eftir birtingu í tímaritinu? Er hægt að lesa yfir og ritrýna á örfáum vikum? Í ljós kom að þetta var allt hægt. Ritnefndin fékk yfir sig holskeflu af handritum en yfir 20 var skilað inn. Að lokum voru 11 handrit samþykkt til birtingar. Ritstjórar ráðstefnunnar, þær Árún K. Sigurðardóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir, lögðu á sig mikla vinnu á sumarfrístíma til þess að lesa yfir handrit, velja ritrýna, fara yfir svör ritrýna og að lokum ákveða hvaða greinar myndu birtast. Ritrýnar og höfundar brugðust skjótt og vel við. Fyrir þetta ber að þakka. Afraksturinn er 11 nýjar fræðigreinar sem bæta verulega stöðu hjúkrunar sem fræðigreinar. Í þeim er að finna heilmiklar upplýsingar sem munu breyta meðferð og umönnun. Við höfum einnig fengið gott fordæmi fyrir framtíðina – nú vitum við að hægt er að búa til ráðstefnublað þar sem birtar eru fræðigreinar í fullri lengd. Við höfum líka lært margt um ritstjórn, ritrýni og blaðaframleiðslu og mun það gagnast okkur vel á næstu árum. Tímarit hjúkrunarfræðinga Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík Sími 540 6405 Bréfsími 540 6401 Netfang christer@hjukrun.is Vefsíða www.hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Sími skrifstofu 540 6400 Ritstjóri og ábyrgðarmaður Christer Magnusson Ritstjórnarfulltrúi Sunna K. Símonardóttir Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu christer@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu­ og fræðigreina er að finna á vefsíðu tímaritsins. Ritnefnd Hjúkrun 2011: Árún K. Sigurðardóttir Þóra Jenný Gunnarsdóttir Próförk og yfirlestur: Helga Garðarsdóttir Halldór Þráinsson Auglýsingar: Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855 Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT Prentvinnsla: Litróf Upplag 350 eintök Pökkun og dreifing: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga VERULEGT FRAMLAG TIL FRÆÐANNA Tölublað þetta er ekki hefðbundið. Þó að það hafi númer eins og önnur tölublöð er það frábrugðið á margan hátt. Í blaðinu eru eingöngu fræðigreinar og útlitið er annað en við eigum að venjast. Þá er blaðinu ekki dreift eins og venjulega heldur einungis til þátttakenda á ráðstefnunni Hjúkrun 2011. Innihald greinanna verður kynnt á ráðstefnunni í formi erinda. Christer Magnusson. Ritstjóraspjall Bankastræti 7 • 101 Reykjavík Sími: 510 6100 • Fax: 510 6150 sereign@lsr.is • www.lsr.iswww.lsr.is Hlutverk LSR er að taka á móti iðgjöldum sjóðfélaga og ávaxta þau í sameiginlegum sjóði til að greiða elli-, örorku-, maka- og barnalífeyri. Séreign LSR tekur við frjálsum viðbótarsparnaði sjóðfélaga. Hvort sem þú greiðir í A- eða B-deild LSR ætti framlag í Séreign LSR að vera eðlileg viðbót. Á vef LSR, www.lsr.is, geta sjóðfélagar nálgast yrlit og séð heildarstöðu lífeyrisréttinda sinna og iðgjaldaskil launagreiðenda. Traustur sjóður, örugg samfylgd

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.