Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Qupperneq 17
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 13
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
(virku) eða mögulegu heilbrigðisvandamáli einstaklings
eða fjölskyldu, sem hjúkrunarfræðingar í krafti menntunar
sinnar og reynslu eru hæfir til og hafa leyfi til að leysa
(NANDA International (NANDAI), 2009). Hér á landi
hafa NANDA hjúkrunargreiningar verið notaðar í um 20
ár (Landlæknisembættið, 1991). Síðustu aldamót mörkuðu
tímamót varðandi hjúkrunarskráningu þegar gerð var krafa
um notkun flokkunarkerfa í hjúkrun í kröfulýsingu um rafræna
sjúkraskrá (Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið, 2000)
og í tilmælum um lágmarksskráningu vistunarupplýsinga á
sjúkrahúsum (Landlæknisembættið, 2001). Í kjölfarið jukust
kröfur um daglega notkun fagmáls í hjúkrun til skráningar
víða á sjúkrahúsum landsins. Árið 2003 var meðal annars
helgað átaki í að bæta hjúkrunarskráningu og auka notkun
staðlaðs fagmáls í hjúkrun á Landspítala (Ásta Thoroddsen,
2006). Þrátt fyrir að 10 ár séu liðin frá því að kröfur um notkun
flokkunarkerfa í hjúkrun voru settar fram er enn ekki hægt að
skrá hjúkrunargreiningar og hjúkrunarmeðferð fyrir inniliggjandi
sjúklinga á sjúkrahúsum í rafræna sjúkraskrá nema að mjög
takmörkuðu leyti. Á Landspítala hefur einungis hjúkrun á
göngudeildum verið skráð í rafræna sjúkraskrá en fyrir árslok
2011 er fyrirhugað að innleiða rafræna hjúkrunarskráningu
í sjúkraskrá á legudeildum. Frá og með árinu 2011 verður
jafnframt tekið upp nýtt, staðlað fagmál í hjúkrun á Íslandi,
sem nefnist ICNP (International Classification for Nursing
Practice) (Landlæknisembættið, 2011).
Rannsóknir sýna að nákvæmni í notkun hjúkrunargreininga
í sjúkraskrám sjúklinga er víða ábótavant (Florin o.fl., 2005;
Lunney, 1998) og margir þættir hafa áhrif á nákvæmni
hjúkrunarfræðinga við greiningu hjúkrunarvandamála (Paans
o.fl., 2011). Þættir sem Paans og félagar nefna að ýti
undir nákvæmni eru meðal annars viðhorf til notkunar
hjúkrunargreininga, þekking og reynsla, gagnrýnin
hugsun, þekking á greiningarferlinu, form sem notuð eru
til hjúkrunarskráningar, stuðningur í rafrænni sjúkraskrá,
vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga og mönnunarmódel.
Kerfisbundin samantekt rannsókna á hjúkrunarskráningu sýnir
einnig að mikið skortir á að staðlað fagmál í hjúkrun sé notað
við daglega hjúkrunarskráningu á alþjóðavísu (Saranto og
Kinnunen, 2009). Ekki fundust rannsóknir er varða notkun
hjúkrunargreininga eða hjúkrunarmeðferðar fyrir þrýstingssár
eða byltur sérstaklega.
Þrýstingssár og byltur
Þrýstingssár og byltur eru notuð sem viðmið um gæði
þjónustu á sjúkrahúsum um allan heim og eru þrýstingssár
einn af árangursvísum í skorkorti Landspítala árin 20112012
(Landspítali, 2011). Klínískar leiðbeiningar hafa verið gefnar út
á íslensku um varnir gegn myndun þrýstingssára (Landspítali,
2008b) og til að fyrirbyggja byltur (Landspítali, 2006).
Rannsóknir sýna að algengi þrýstingssára á sjúkrahúsum
er 8,323% í Evrópu (Vanderwee o.fl., 2007). Við skoðun
sjúklinga á Landspítala árið 2008 reyndust 21,5% þeirra
vera með þrýstingssár (Guðrún Sigurjónsdóttir o.fl., 2011)
en gögn úr sjúkraskrám og opinberum skýrslum sýna mun
lægri tölu (Landspítali, 2009). Meira en 30% sjúklinga sem
eru eldri en 65 ára hljóta byltur á heilbrigðisstofnunum
árlega (Gillespie o.fl., 2003). Árið 2005 var 351 bylta skráð
sem atvik á Landspítala eða 1,4 byltur á 1000 legudaga
(Landspítali, 2006), en sambærileg tala var 2,7 til 13 byltur
á 1000 legudaga víða erlendis (Halfon o.fl., 2001; Healey
o.fl., 2008; Oliver o.fl., 2007). Margar alþjóðlegar stofnanir
vinna að útgáfu klínískra leiðbeininga, til dæmis evrópsku
og bandarísku ráðgjafarsamtökin um þrýstingssár (European
Pressure Ulcer Advisory Panel (EPUAP) og National Pressure
Ulcer Advisory Panel (NPUAP), 2009), National Institute for
Health and Excellence (NICE) (2005) og Registered Nurses‘
Association of Ontario (RNAO) (2011). Þær hafa ítrekað
mikilvægi þess að kerfisbundið mat fari fram á sjúklingum sem
leggjast inn á sjúkrahús til að greina þá sem eru í hættu á að
fá þrýstingssár og byltu. Mikilvægt er að skráð sé á staðlaðan
hátt í sjúkraskrá ef sjúklingar eru í hættu á að fá þrýstingssár
eða byltu þar sem það gefur mikilvægar vísbendingar um
öryggi sjúklinga og gæði þjónustu. Leiðbeiningar eða reglur
um hvað eða hvernig eigi að skrá hafa ekki verið settar fram
á Íslandi.
Rannsóknir gefa til kynna að þrýstingssára og byltuvarnir
séu dagleg viðfangsefni í hjúkrun sjúklinga á sjúkrahúsum.
Í klínískum leiðbeiningum er ráðlagt að áhættumat vegna
þrýstingssárahættu sé gert hjá öllum sjúklingum sem leggjast
inn (Landspítali, 2008b) og byltumat hjá öllum sjúklingum
67 ára og eldri (Landspítali, 2006). Athyglisvert má því telja
að hugtakið þrýstingssár eða legusár er ekki að finna á lista
yfir NANDAhjúkrunargreiningar. Hins vegar eru á þessum
lista eftirfarandi hjúkrunargreiningar sem lýsa húðtengdum
vandamálum: Veikluð húð, hætta á veiklun húðar, vefjaskaði
sár, hætta á fylgikvillum rúmlegu og hætta á skaða við
legu vegna skurðaðgerðar. Hjúkrunargreiningin hætta á byltu
eða dettni lýsir aftur á móti byltuhættu ótvírætt og hefur
verið til síðan árið 2000 (NANDAI, 2009). Í ljósi þess hve
algeng ofangreind tvö viðfangsefni eru í hjúkrun og samfara
aukinni notkun staðlaðs fagmáls í hjúkrun þótti áhugavert
að kanna hvernig þau væru skráð í sjúkraskrá sjúklinga.
Rannsóknarspurningin er því: „Hvaða hjúkrunargreiningar og
hjúkrunarmeðferð hafa íslenskir hjúkrunarfræðingar notað til að
skrá þrýstingssár og byltur eða hættu þar á?“
AÐFERÐ
Rannsóknarsnið og úrtak
Framkvæmd var lýsandi rannsókn þar sem hjúkrunargreiningar
og skráð meðferð í sjúkraskrám sjúklinga á árunum 2004 og
2005, sem tengdust þrýstingssárum og byltum eða hættu
þar á, voru kannaðar. Úrtaksviðmið voru sjúklingar eldri en
18 ára á Landspítala á lyflækninga, skurðlækninga og
öldrunarlækningasviði og endurhæfingardeild (29 deildir) sem
höfðu legið lengur en 48 klst. á deildinni. Val á sjúkraskrám
fór fram með kerfisbundinni úrtaksaðferð. Fyrsta sjúkraskráin
var valin af handahófi og síðan var önnur hver sjúkraskrá
sjúklinga valin þar til 50% sjúklinga, sem uppfylltu ofangreind
úrtaksviðmið á hverri deild, var náð (n=211 og n=196).