Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 24
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 201120
geta stjórnað vinnuálaginu en þeir sem voru 31 árs og eldri
(x2 (2)6,286, p<0,05). Hjúkrunarfræðingar með 5 ára eða
lægri starfsaldur gátu síður en hjúkrunarfræðingar með 6 ára
eða hærri starfsaldur stjórnað eigin vinnuálagi (x2 (2)7,583,
p<0,05).
Félagslegur stuðningur
Mikill meirihluti, 86%, sagðist oft eða alltaf fá stuðning og hjálp
með verkefni frá vinnufélögum ef á þyrfti að halda og 72% frá
næsta yfirmanni. Tveir þriðju sögðu næsta yfirmann oft eða
alltaf meta það við sig ef þeir næðu árangri í starfi. Meira en
helmingur sagði næsta yfirmann oft eða alltaf hjálpa sér við
að auka færni sína í starfi (tafla 2). Yngstu og reynsluminnstu
hjúkrunarfræðingarnir höfðu frekar fengið stuðning en þeir eldri
og reyndari.
Kulnun
Þrír undirflokkar kulnunar voru mældir. Undirflokkarnir eru
tilfinningaþrot, hlutgerving og upplifun á eigin vinnuafköstum.
Til að meta umfang kulnunar var stuðst við viðmiðunargildi
með mælitækinu þar sem skilgreind eru gildi fyrir einkenni um
litla kulnun, miðlungskulnun og mikla kulnun (Maslach o.fl.,
1996). Samkvæmt því reyndust einkenni um tilfinningaþrot
og hlutgervingu í heild lítil í rannsókninni en upplifun á eigin
vinnuafköstum mældist miðlungsgóð (tafla 3).
Niðurstöðurnar voru bornar saman við niðurstöður frá árinu
2002 (Gunnarsdóttir o.fl., 2009). Samanburðurinn leiddi í
ljós meiri einkenni tilfinningaþrots nú en áður, en aukningin
var ekki marktæk þegar heildarniðurstöður hópsins voru
Tafla 3. Mat hjúkrunarfræðinga á LSH á einkennum kulnunar. Samanburður á meðaltölum undirflokka milli ára og milli sviða.
Samanburður á undirflokkum kulnunar milli ára og milli sviða.
Tilfinningaþrot1 Hlutgerving2 Vinnuafköst3
N Meðaltal SF Meðaltal SF Meðaltal SF
Bæði svið 2008 138 15,2 8,8 4,7** 4,5 37,5** 5,9
Bæði svið 2002 191 13,9 7,8 3,4** 3,3 39,5** 6,2
t(240)=-2,89 t(300)=2,97
Lyflækningasvið 2008 67 17,1*** 9,8 4,9* 4,8 37,1* 6,3
Lyflækningasvið 2002 92 14,3*** 8,6 3,5* 3,8 39,8* 6,3
t(157)=-1,90 t(156)=-2,10 t(156)=2,62
Skurðlækningasvið 2008 71 13,3 7,4 4,5* 4,3 37,9 5,5
Skurðlækningasvið 2002 99 13,6 7,0 3,3* 2,9 39,3 6,1
t(114)=-2,06
*p<0,05, **p<0,01, ***p= 0.06
Lítil kulnun er skilgreind skv. Maslach o.fl. (1996) sem:
1Tilfinningaþrot < 18 2Hlutgerving < 5 3Vinnuafköst > 40
Tafla 2. Mat hjúkrunarfræðinga á Landspítala, lyflækningasviði I og skurðlækningasviði, á vinnuálagi, ákvarðanavaldi, stuðningi
starfsfélaga og stuðningi yfirmanns (fjöldi svarenda (N) og hundraðshlutföll (%)).
Vinnuálag1 Ákvarðanavald2 Stuðningur starfsfélaga3 Stuðningur yfirmanns4
Lyf I Skurðsvið Lyf I Skurðsvið Lyf I Skurðsvið Lyf I Skurðsvið
N % N % N % N % N % N % N % N %
Mjög sjaldan/
aldrei
0 0 1 1,4 3 4,6 0 0 0 0 0 0 1 1,5 1 1,4
Fremur sjaldan 0 0 6 8,3 4 6,2 7 9,7 2 3 0 0 0 0 2 2,9
Stundum 22 32,8 40 55,5 37 56,9 35 48,6 8 11,9 8 11,3 18 26,9 15 21,4
Fremur oft 33 49,3 21 29,2 20 30,8 29 40,3 28 41,8 31 43,7 22 32,8 30 42,9
Mjög oft/alltaf 12 17,9 4 5,6 1 1,5 1 1,4 29 43,3 32 45 26 38,8 22 31,4
Samtals 67 100 72 100 65 100 72 100 67 100 71 100 67 100 70 100
1Hefur þú of mikið að gera? 2Getur þú haft áhrif á ákvarðanir sem miklu skipta í starfi þínu? 3Færð þú stuðning og hjálp með verkefni hjá vinnufélögum
þínum ef á þarf að halda? 4Færð þú stuðning og hjálp með verkefni hjá næsta yfirmanni þínum ef á þarf að halda?