Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Side 42
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 201138
íslensku þýðingarinnar á vonleysiskvarðanum reyndist vera
0,90 (Chronbachs alfa).
UMRÆÐUR
Megintilgangur þessarar rannsóknar var að þýða og forprófa
vonleysiskvarða Becks og meta áreiðanleika og réttmæti
íslensku þýðingarinnar. Auk þess var skoðað hvort ákveðnir
bakgrunnsþættir tengdust alvarleika vonleysis. Í ljós kom að
stuttan tíma tók að svara kvarðanum, um 510 mínútur, og
einfalt reyndist að leggja hann fyrir. Þar sem vonleysiskvarðinn
inniheldur einungis fullyrðingar sem svarað er rétt eða rangt
þá getur í ákveðnum tilfellum verið erfitt að taka afdráttarlausa
afstöðu. Nokkrir þátttakendur settu því kross á milli
fullyrðinganna og var það algengast við fullyrðinguna: Ég get
ekki ímyndað mér hvernig líf mitt verður eftir 10 ár.
Áreiðanleiki íslensku þýðingarinnar reyndist góður eða 0,90
og var hann sambærilegur bæði við upprunalega forprófun
Beck o.fl. (1974) og seinni tíma prófanir á kvarðanum (Dyce,
1996; Haatainen o.fl., 2004). Íslenska þýðingin var borin
undir fagfólk og sjúklinga og benti mat þeirra til að yfirborðs
og innihaldsréttmæti væri gott. Þáttagreining íslensku
þýðingarinnar leiddi í ljós þrjá undirliggjandi þætti eða hugtök.
Fyrsti þátturinn, skortur á áhugahvöt, endurspeglar uppgjöf,
Tafla 3. Leitandi þáttagreining á íslenskri þýðingu vonleysiskvarða Becks.
Fullyrðing Þáttahleðsla
Þáttur Skortur á
áhugahvöt
(α = 0.845)
Þáttur Jákvæðar
væntingar til
framtíðar
(α = 0.791)
Þáttur 3
Viðhorf til
framtíðar
(α = 0.779)
h2
2 Ég get einfaldlega gefist upp þar sem ég get ekkert gert til að bæta líf mitt. 0,585 0,199 0,104 0,381
9 Ég get ekki tekist á við mótlæti lífsins og það er engin ástæða til að ætla að
ég geti það í framtíðinni.
0,731 0,019 0,284 0,646
11 Ég býst við að það sem mæti mér í framtíðinni verði óþægilegt fremur en
þægilegt.
0,499 0,337 0,340 0,605
13 Þegar ég horfi til framtíðar býst ég við að verða hamingjusamari en ég er núna. 0,581 0,536 0,047 0,612
16 Ég fæ aldrei það sem ég vil svo það er heimskulegt að vonast eftir einhverju. 0,709 0,317 0,026 0,607
17 Það er mjög ólíklegt að ég öðlist sanna lífsfyllingu í framtíðinni. 0,575 0,423 0,288 0,590
20 Það er tilgangslaust að leggja sig fram við að öðlast eitthvað því líklega fæ
ég það ekki.
0,755 0,154 0,190 0,607
1 Ég lít til framtíðar með von og eftirvæntingu. 0,162 0,667 0,160 0,435
3 Þegar hlutirnir ganga illa, þá hjálpar mér að vita að þannig verður það ekki alltaf. 0,157 0,549 0,149 0,467
5 Ég hef nægan tíma til að komast yfir það sem mig langar til að gera. 0,003 0,614 0,214 0,608
6 Ég býst við að í framtíðinni muni mér takast það sem skiptir mig mestu máli. 0,273 0,702 0,177 0,621
10 Reynsla mín hefur undirbúið mig vel fyrir framtíðina. 0,341 0,411 0,357 0,506
19 Ég sé fram á fleiri góðar stundir í framtíðinni en slæmar. 0,276 0,603 0,309 0,575
4 Ég get ekki ímyndað mér hvernig líf mitt verður eftir tíu ár. 0,048 0,043 0,302 0,571
7 Mér finnst framtíð mín dökk. 0,399 0,294 0,399 0,427
8 Ég tel mig einstaklega lánsama manneskju og býst við að ég njóti meiri
velgengni í lífinu en venjulegt fólk.
0,063 0,099 0,726 0,563
12 Ég á ekki von á að öðlast það sem mér finnst eftirsóknarverðast. 0,370 0,474 0,477 0,577
14 Hlutirnir ganga ekki upp eins og ég vil að þeir geri. 0,089 0,145 0,695 0,623
15 Ég hef mikla trú á framtíðinni. 0,224 0,481 0,509 0,570
18 Mér virðist framtíðin óljós og óviss. 0 ,240 0,080 0,622 0,613
Dreiftala (%) 35,73 8,74 6,41
α = Chronbachs alfa h2 = skýrð atriðadeifing (communalities)