Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Qupperneq 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Qupperneq 47
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 43 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER þar af þrír í enskumælandi landi og reynslu af verkjameðferð og rannsóknarvinnu komu að þýðingu listans sem unninn var samkvæmt aðlöguðu módeli Brislin (Jones o.fl., 2001). Þar er mælt með því að sá sem bakþýði geri það blindandi, það er án þess að hafa aðgang að upprunalegum texta. Því næst er bakþýðingin borin saman við upprunalegt skjal og ef munur er á inntaki í þýðingu þarf að byrja upp á nýtt (Jones o.fl, 2001). Tveir hjúkrunarfræðingar þýddu listann úr ensku yfir í íslensku og hinir tveir þýddu til baka. Bakþýddu útgáfurnar voru bornar saman við upprunalega skjalið og inntakið metið af öllum þýðendum. Ekki reyndist vera munur á inntaki bakþýdda listans og þess upprunalega. Til viðbótar við KA­SRP voru 6 bakgrunnspurningar er vörðuðu starfssvið, starfs­ og lífaldur, nám og reynslu af verkjameðferð. Spurningarnar um aldur og starfsaldur voru bilskiptar svo ekki var hægt að reikna út meðalaldur og starfsaldur þátttakenda heldur einungis fjölda í hverju aldursbili eins og sýnt er í töflu 1. Ekki var spurt um bakgrunnsbreytur hjá þeim 13 meistaramenntuðu hjúkrunarfræðingum sem fengu spurningalistann á pappír vegna persónuverndarsjónarmiða þar sem úrtakið var lítið og hætta á að hægt yrði að rekja svörin til þeirra. Rannsóknarleyfi Leyfi fyrir rannsókninni voru fengin hjá siðanefnd stjórn sýslu­ rannsókna (15/2010), á Landspítala og stjórnendum spítalans, sem og frá deildarforseta hjúkrunarfræðideildar. Rannsóknin var einnig tilkynnt til Persónuverndar. Þátttakendur fengu sent Tafla 1. Lýsing á þátttakendum. Hjúkrunarnemar n=25(14,7%) Hjúkrunarfræðingar n=135 (79,4 %) Aldur í árum 20­30 19(76,0) 21 (15,6) 31­40 4 (16,0) 49 (36,3) 41­50 1 (4,0) 38 (28,2) 51­60 1 (4,0) 24 (17,8) 61­70 0 3 (2,2) Starfsaldur í árum <1 7 (5,2) 1­2 12 (8,9) 3­5 19 (14,1) 6­10 24 (17,8) 11­15 21 (15,6) >15 52 (38,5) Viðbótarnám á háskólastigi Í hjúkrunarfræði 34(25,4) Í öðru en hjúkrunarfræði 19(14,2) Nei 81(60,4) Ekki svarað 1 (0,7) Hve oft sinnir þú sjúklingum með verki Mjög oft 63 (46,7) Oft 25 (18,5) Sjaldan 36(26,7) Aldrei 11(8,2) Starfssvið Bráðasvið 54 (40,0) Geðsvið 34 (25,2) Kvenna­ og barnasvið 47 (34,8) Hefur sótt námskeið/ráðstefnu um verki s.l. 5 ár Já 24 (17,8) Nei 110 (81,5) Svarar ekki 1 (0,7) Ekki var spurt um bakgrunnsbreytur hjá meistaramenntuðum með reynslu af verkjameðferð. Einungis var spurt um aldur hjá hjúkrunarnemum þar sem hinar spurningarnar tengjast starfi eftir útskrift.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.