Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Side 66
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 201162
Persónuverndar (S4578). Þátttakendur og forráðamenn þeirra
gáfu skriflegt upplýst samþykki fyrir þátttöku í rannsókninni.
Gagnasöfnun. Stúlkurnar voru boðaðar í viðtal. Hvert viðtal tók
um eina klukkustund og voru öll viðtölin tekin af fyrsta höfundi.
Upphaflega var áætlað að taka tvö viðtöl við hverja stúlku,
á meðgöngu og eftir fæðingu, en þar sem erfiðlega gekk að
ná í þátttakendur var ákveðið að láta eitt viðtal nægja í þeim
tilfellum sem ekki náðist í stúlkurnar á meðgöngu. Viðtölin voru
hljóðrituð og skráð niður orðrétt.
Gagnagreining. Fylgt var í megindráttum eftir greiningarferli
Colaizzi þar sem viðtölin voru lesin vel yfir, hvert viðtal síðan
lesið með tilliti til merkingarbærra atriða er vörðuðu stuðning
og stuðningsleysi, merking þessara atriða sett fram og flokkuð
í þemu og undirþemu og hverju þeirra lýst með tilvísun í orð
þátttakenda (Munhall, 1994; Sanders, 2003). Höfundar gerðu
greiningarlykil eftir að hafa lesið gögnin (Rubin og Rubin,
1995). Til að auka trúverðugleika gagnagreiningar greindu
báðir höfundar gögnin með hliðsjón af greiningarlykli (Kvale,
1996). Gagnagreiningarnar voru síðan bornar saman og var
gott samræmi á milli þeirra.
NIÐURSTÖÐUR
Við úrvinnslu niðurstaðna kom í ljós að ungu mæðurnar skýrðu
stuðning fyrst og fremst sem andlegan og tilfinningalegan en
einnig sem fræðslu eða upplýsingastuðning. Allar nema ein
Tafla 1. Einkenni þátttakenda; aldur, samband við barnsföður, búseta, nám og hjúskapur foreldra.
Þátttakendur Aldur við
þungun
Samband við
barnsföður
Býr í
foreldrahúsi
Skóli/nám Hjúskaparstaða foreldra
Birta 14 já móður heimakennsla fráskilin > nýir makar
Sóley 15 já móður
tengdamóðir
frjáls mæting Fráskilin > nýir makar
Fjóla 16 já foreldrum
tengdamóður
hlé/hætti í skóla gift/sambúð
Hekla 17 nei Móður
vinkonu
frjáls mæting fráskilin > nýir makar
Katla 17 já Móður
tengdamóður
fjarnám fráskilin > nýir makar
Rósa 16 já móður hlé/ætlar i skóla fráskilin > nýir makar
Tafla 2. Heilsufar móður og barns.
Þátttakendur Heilsufar móður
á meðgöngu
Heilsufar móður
eftir fæðingu
Heilsufar barns
Birta Meðgöngueitrun Þunglyndiseinkenni
(EPDS=17)
Erfiðleikar við brjóstagjöf
(lítil mjólk > sár á vörtum)
RS vírus – innlögn
Hætt BG* 34 vikna
Sóley Meðgöngueitrun Óeðlileg blæðing (> 2,5l)
Þunglyndiseinkenni (EPDS>14)
RS vírus –innlögn
Barn á brjósti
Fjóla Hraust Sýking
Erfiðleikar við brjóstagjöf
(erfitt að leggja á brjóst)
Léttburi (2680g)
Hætt BG* 3ja vikna
Hekla Legsamdr./ógnandi
fyrirburafæðing
Erfiðleikar við brjóstagjöf
(sár á vörtum > lítil mjólk)
Lungnabólga 3ja mán.
Hætt BG* um 5 vikna
Katla Áfallastreituröskun
v. missis nákomins
Blóðlítil (anemia)
Slæmir bakverkir
Blóðlítil (þreklaus)
Vanlíðan (?Þunglyndi)
Erfiðleikar við brjóstagjöf
(sár á vörtum>lítil mjólk)
Mikil óværð í 4 mán magakveisa/
bakflæði
Hætti BG* eingöngu rúml. 3 v. alveg
4. mán
Rósa Meðgöngueitrun Hraust Hraust, á brjósti
BG*= Brjóstagjöf