Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 75

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2011, Page 75
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 87. árg. 2011 71 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER áhættumat, þ.e. hvort ef til vill hefði verið mögulegt að fylgjast með börnunum á fæðingardeild, Hreiðri eða sængurkvennagangi og þannig komast hjá aðskilnaði. Tímalengd áhættumats í rannsókn Zupancic og Richardson (1998) varði í allt að sólarhring og var því svipuð og í þessarri rannsókn. Þau börn sem voru lengst í mati á vökudeild voru í rúmlega 13 klst. Athygli vekur að mjög fá börn í rannsókn Zupanicic og Richardson (1998) fóru í áhættumat vegna erfiðleika við að halda uppi eðlilegum blóðsykri, ólíkt því sem er í þessarri rannsókn. Ætla má að fylgst hafi verið með blóðsykri þeirra annars staðar. Hiti barnanna er breytilegur, en miðað við meðaltalshita við komu eru flest innan eðlilegra marka. Ekkert barnanna kemur í áhættumat vegna hita eða kulda heldur eru þetta viðbótareinkenni. Hjá flestum barnanna voru ekki þekktir áhættuþættir fyrir fæðingu, heldur skapaðist þörf fyrir eftirlit í kjölfar fæðingar. Flest börnin útskrifast til móður innan fjögurra klukkustunda á vökudeildinni sem er ívið minna en í rannsókn Allison og Burcin (2011). Ómögulegt er út frá þessum gögnum að segja með vissu hver sé ástæðan fyrir muninum á áhættuinnlögnum eftir árstíðum. Reynsluleysi og ýmsar aðstæður á fæðingardeild og vökudeild geta haft áhrif. Sumarfrí og sumarafleysingar gætu útskýrt aukið hlutfall áhættuinnlagna í ágúst. Þegar skoðaðar eru fæðingar á LSH fyrir árið 2008 er ekki hægt að skýra muninn með fjölda fæðinga eingöngu. Þess má geta að fleiri tvíburafæðingar voru í ágúst en hina mánuðina og tíðni fyrir fram ákveðins keisaraskurða var há í ágúst og nóvember. Athugunareyðublöðin gáfu góða mynd af ástandi barns og ástæðum fyrir áhættumati. Þó var erfitt að sjá á þeim hvaðan barnið kom, þ.e. fæðingargangi, Hreiðri eða sængurkvennagangi. Einnig var erfitt að finna út aldur við komu, en áhugavert væri að vita hvort munur væri á ástæðu innlagnar eftir því í hvaða kringumstæðum barnið fæðist og hve langt er liðið frá fæðingu þegar barn kemur í áhættumat. Ályktanir Af niðurstöðunum má sjá að ástæða er til að fylgjast með ákveðnum hópi barna á fyrstu klukkustundum ævi þeirra þó svo að ekki sé þörf á áframhaldandi innlögn. Þar sem stefnan er að aðskilja ekki móður og barn nema það sé bráðnauðsynlegt væri þó, í ljósi þess fjölda sem ekki þarf nema stutt eftirlit, mögulegt að fylgjast með einhverjum hluta af þeim börnum sem nú fara í áhættumat á vökudeild, hjá móður sinni á fæðingargangi og í Hreiðri frekar en að aðskilja þau. Það væri til dæmis athugandi að börn sem eru í hættu á að lækka í blóðsykri væru hjá móður sinni undir nákvæmara eftirliti af hálfu ljósmæðra. Hugsanlega mætti koma í veg fyrir stystu áhættumatsinnlagnirnar með því að fylgjast lengur með barni á fæðingarstofu áður en ákvörðun er tekin um áhættumat. Nauðsynlegt er því að rannsaka þennan hóp barna nánar og yfirfara verklag við áhættuinnlagnir og matsþætti í áhættumatinu hér á landi. ÞAKKIR Þökkum er beint til allra þeirra sem aðstoðuðu við öflun gagna á vökudeild Landspítala. Einnig þökkum við Eiríki Valdimarssyni, eiginmanni Katrínar Kolku Jónsdóttur, fyrir að veita okkur leyfi til að ljúka grein þessari, þó svo að Katrínu hafi ekki enst ævi til að taka þátt í lokaskrifum, en hún lést 27. febrúar 2011 úr krabbameini. Við söknum hennar en blessum minningu hennar og þökkum samstarf við góða fagsystur og vinkonu og biðjum gæskuríkan Guð að blessa fjölskyldu hennar. HEIMILDIR Alyn, I.B., og Baker, L.K. (1992). Cardiovascular anatomy and physiology of the fetus, neonate, infant, child and adolescent. Journal of Cardiovascular Nursing, 6, 1­11. Allison, B.A., og Burcin, E. (2011). Triage, not just for the emergency department: a discussion of the appropriate level of care for the transitioning infant, Neonatal Network, 3 (2), 99­103. Askin, D.F. (2001), Complications in the transition from fetal to neonatal life. The Journal of Obstetric, Gynecologic, & Neonatal Nursing, 31 (3), 318­ 327. Bialoskurski, M., Cox, C.L., og Hayes, J.A. (1999). The nature of attachment in a neonatal intensive care unit. The Journal of Perinatal and Neonatal Nursing, 13, 66­77. Fransson, A.L., Karlsson, H., og Nilsson, K. (2005). Temperature variation in newborn babies: importance of physical contact with the mother. Archives of Disease in Childhood: Fetal Neonatal Edition, 90, 500­504. Haninger, N.C., og Farley, C.L. (2001). Screening for hypoglycemia in healthy term neonates: effects on breastfeeding. Journal of Midwifery and Women´s Health, 46, 292­301. Heermann, J.A., Wilson, M.E., og Wilhelm, P.A. (2005). Mothers in the NICU: outsider to partner, Pediatric Nursing, 31, 176­200. Klaus, M.H., Fanaroff, A.A., og Martin, R.J. (1986). The Physical Environment. Í M.H. Klaus og A.A. Fanaroff (ritstj.), Care of the High-risk Neonate (3. útg.) (Bls 96­112). Philadelphia: W.B. Saunders Company. Laptook, A., og Jackson, G. (2006). Cold stress and hypoglycemia in the late preterm (“near term”) infant: impact on nursery of admission. Seminars in Perinatology, 30, 24­27. Leone, T.A., og Finer, N.N. (2006). Fetal adaptation at birth. Current Pediatrics, 16, 269­274. Olesen, A.W., Westergaard, J.G., og Olsen, J. (2003). Perinatal and maternal complications related to postterm delivery: a national register­based study, 1978­1993. American Journal of Obstetrics and Gynecology, 189, 222­227. Richardson, B.S., Czikk, M.J., daSilva, O., og Natale, R. (2005). The impact of labor at term on measures of neonatal outcome. American Journal of obstetrics and Gynecology, 192, 219­226. Rudolph, A.J., og Garcia­Prats, J.A. (1986). Anticipation, recognition and transitional care of the high­risk infant. Í M.H. Klaus og A.A. Fanaroff (ritstj.), Care of the High-risk Neonate (3. útg.). (Bls. 51­68). Philadelphia: W.B. Saunders Company. Sinha, S.K., og Donn, S.M. (2006). Fetal­to­neonatal maladaptation. Seminars in Fetal and Neonatal Medicine, 11, 166­173. Snorri Freyr Dónaldsson, Atli Dagbjartsson, Hörður Bergsteinsson, Hildur Harðardóttir, Ásgeir Haraldsson og Þórður Þórkelsson (2007). Öndunarörðugleikar hjá nýburum sem fæðast með valkeisaraskurði. Læknablaðið, 93, 675­679. Steer, P. (2004). The management of large and small for gestational age fetuses. Seminars in Perinatology, 88, 59­66. Thilo, E.H., og Rosenberg, A.A. (2007). The Newborn Infant. Í W.W.Hay, M.J.Levin, , J.M.Sondheimer, og R.R. Deterding, (ritstj.), Current Pediatric Diagnosis & Treatment (18. útg.) McGraw­Hill. Rafræn bók, sótt 7. ágúst 2008 á http://www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmpages/index.html. Wheeler, C.A., og Tudhope, A.E. (1994). Development of a neonatal intensive care nursery resuscitation and triage team: Impact on nursing care and infant outcome. Neonatal Network, 13, 53­62. Wigert, H., Johansson, R., Berg, M., og Hellström, A.L. (2006). Mothers´ experiences of having their newborn child in a neonatal intensive care unit. Scandinavian Journal of Caring Sciences, 20, 35­41. World Health Organization (1997). Hypoglycemia of the newborn: Review of the Literature. Sótt 22.október 2008 á http://www.who.int/reproductive­ health/docs/hypoglycemia_newborn.htm. Yee, W., Amin, H., og Wood, S. (2008). Elective cesarean delivery, neonatal intensive care unit admission, and neonatal respiratory distress. Obstetrics and Gynecology, 111, 823­828. Zupancic, J.A.F., og Richardson, D.K. (1998). Characterization of the triage process in neonatal intensive care. Pediatrics, 102 (6), 1432­1436.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.