Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 16
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201112
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
FORYSTA SEM ÞJÓNAR
Á næsta ári mun Háskólinn á Akureyri bjóða meistaranámskeið í stjórnun
með áherslu á þjónandi forystu. Þetta er hugtak sem heyrist æ oftar meðal
hjúkrunarfræðinga, en hvað er þjónandi forysta og hvernig tengist hún hjúkrun?
Sigrún Gunnarsdóttir er lektor við
hjúkrunar fræðideild Háskóla Íslands og
umsvifamikill vísindamaður. Hún hefur
rannsakað viðhorf starfsmanna á nokkrum
sviðum Landspítala til starfsins sem þeir
sinna, fyrst í þvottahúsi og eldhúsi og svo
hjá hjúkrunarfræðingum. Þá hefur hún
„Hugmyndirnar um þjónandi forystu smellpassa við mínar rannsóknarniðurstöður,“ segir Sigrún Gunnarsdóttir, lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ
og einn helsti sérfræðingur Íslands í þjónandi forystu.
Þjónandi forysta í meistaranámi
Í janúar á næsta ári mun Háskólinn á Akureyri bjóða meistaranámskeið með áherslu á stjórnun, ígrundun og þjónandi forystu
sem hluta af námsvali á heilbrigðisvísindasviði skólans. Hægt er að taka námskeiðið, sem er 10 ECTS-einingar, sem stakt
námskeið eða sem hluta af diplóma- eða meistaranámi. Það er kennt í fjórum lotum og fólk getur því stundað námið með
vinnu. Námskeiðinu stýra Sigrún Gunnarsdóttir, Árún Sigurðardóttir og Helga Bragadóttir.
kynnt fyrir íslenskum hjúkrunarfræðingum
ýmis forvitnileg hugtök, eins og heilsu
eflingu og uppsprettur heilbrigðis. Hún
er einnig helsti sérfræðingur hjúkrunar
f ræðinga í þjónandi forystu. Þessari
hugmynd kynntist hún fyrir nokkrum árum
og hreifst strax af henni.
Sigrún útskrifaðist 1986 úr námsbraut
í hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands. Hún
fór fljótlega til Danmerkur í framhalds
nám og lærði þar kennslufræði og
samskiptafræði. Þegar hún kom heim
var verið að undirbúa meistaranám hér á
Íslandi. Hún sótti um og fékk inngöngu í